Sjónvarpsþátturinn Veislan snýr aftur á RÚV, á morgun sunnudag þann 15. júní, með vinunum og leiðsögumönnunum, Sverri Þór Sverrissyni og Gunnari Karli Gíslasyni. Í þessari þriðju þáttaröð leiða þeir áhorfendur í ævintýraferðir um hinar ýmsu eyjar landsins. Það má segja að þeir félagarnir fari á kostum þegar eyjarnar eru heimsóttar og sýni á sér sínar bestu hliðar.
Í tilefni þess var boðið til frumsýningarpartí í verslun 66°N við Hafnartorg í miðbæ höfuðborgarinnar. Margt var um manninn og mikil gleði ríkti meðal gesta og framleiðsluteymisins og vinanna tveggja, Gunnars Karls og Sverris.
Flatey heimsótt í fyrsta þætti
Á ferðalagi sínu um stórbrotið landslag eyjanna og sveitanna þar í kring heimsækja þeir meðal annars minna þekkta staði, kynnast áhugaverðu fólki og fræðast um menningu, listir, mat og nýsköpun á sviði auðlindanýtingar hér á Fróni. Fyrsta eyjan sem þeir félagar heimsækja er Flatey í Breiðafirði sem oft hefur verið kölluð matarkista Íslands.
Þegar ég spurði Gunnar Karl hvað honum fyndist standa upp úr eftir þessar síðustu tökur fannst honum afar erfitt að svara því.
„Úff, það er svakalega erfitt að setja puttann á eitthvað eitt. Heilt yfir fannst mér svo frábært hvað okkur var alls staðar tekið hlýlega og vel. Alveg sama hvar það var þá stóðu okkur allar dyr opnar.“
Hvaða eyjaheimsókn heillaði þig mest?
„Það er ekki séns að gera upp á milli þeirra, ekki frekar en barnanna. Hver og ein hefur sinn ótrúlega sjarma, sögu og fegurð. Ekki skemmdi það svo fyrir að það var meira og minna alltaf bongóblíða, alveg sama hvert við fórum.“
Sverrir Þór, betur þekktur sem Sveppi, tók undir saman streng með Gunnari Karli og sagðist engan veginn geta gert upp á milli eyjanna. Þær séu hver annarri fegurri og bjóði allar upp á einstakt ævintýri.
Safna kunnáttu og hráefnum til veisluhalda
Á leið sinni á hvern stað safna þeir kunnáttu og hráefnum til veisluhalda sem Gunnar Karl matreiðir í lok hvers þáttar af sinni alkunnu snilld með dyggri aðstoð heimamanna.Oftar en ekki fáum við einnig að njóta tónlistar þeirra sem dvelja á staðnum á meðan hópur fólks nýtur afraksturs ferðalagsins í sannkallaðri veislu.
Hvað fannst þér mest spennandi að matreiða?
„Ó, mamma mía, ætli það hafi ekki verið karfinn sem við keyptum af sjómanni úti á ballarhafi þegar við vorum að sigla í Flatey á Skjálfanda. Þeirri siglingu verður seint gleymt. Það var fullt af hvölum, yndislegt veður og svo hittum við bara sjómann á trillu sem seldi okkur karfa. Þetta var bara eins og einhver lygasaga. Annars finnst mér nú alltaf sá matur bestur sem eldaður er fyrir mig,“ segir Gunni og brosir út í eitt.
Þegar Sveppi er spurður út í eldamennskuna segist hann ekki hafa matreitt mikið. „Ég var aðallega handlangari, hjálpaði við að sækja rabarbara út í garð, sem ég reyndar gerði með mínum hætti, og margt fleira. Best var þó að snæða þennan veislumat í góðum félagsskap. Það er engu líkt,“ segir Sveppi með bros á vör.
Í frumsýningarpartíinu fengu gestir að sjá stiklur úr komandi þáttum og var það mál manna að fram undan væri góð sunnudagsskemmtun með þeim Gunnari Karli og Sveppa þar sem íslenskar náttúruperlur og kræsingar eru í forgrunni.