Aðsókn í sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu jókst um 3,5% á síðasta ári frá árinu á undan. Er það nokkuð umfram fólksfjölgun á höfuðborgarsvæðinu. Mesta aukning milli ára er í Garðabæ, en þar fjölgaði heimsóknum um 15,4% milli ára. Hluti skýringarinnar þar er lengri afgreiðslutími.
Laugardalslaug er mest sótta sundlaugin í Reykjavík, en tvær sundlaugar á höfuðborgarsvæðinu eru þó meira sóttar. Það eru Lágafellslaug í Mosfellsbæ og Kópavogslaug í Kópavogi, en sú síðarnefnda er mest sótta sundlaug höfuðborgarsvæðisins.
Í Reykjavík endurheimti Vesturbæjarlaug annað sætið eftir að gestir í Sundhöll Reykjavíkur höfðu verið fleiri árið 2023. Gestum í nýjustu laug höfuðborgarsvæðisins, Dalslaug, heldur áfram að fjölga og voru í fyrra fleiri en gestir í Breiðholtslaug.
mbl.is óskaði eftir aðsóknartölum í sundlaugar sveitarfélaganna sex á höfuðborgarsvæðinu og þar má sjá alls konar áhugaverða tölfræði.
Gestir samtals 4,27 milljónir í fyrra
Sem fyrr segir fjölgar gestum í sundlaugarnar yfir höfuð. Árið 2023 voru gestir þeirra samtals 4.125.353 en í fyrra voru þeir 4.270.834. Nemur það 3,53% fjölgun milli ára. Íbúafjöldi samkvæmt tölum Hagstofunnar jókst hins vegar á sama tímabili um 2% og jókst því aðsók um rúmlega 1,5 prósentustig umfram fólksfjölgun.
Flestar heimsóknir á íbúa á Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ
Miðað við tölur sveitarfélaganna og tölur Hagstofunnar voru íbúar á Seltjarnarnesi og Mosfellsbæ duglegastir að nýta sér sundlaugarnar. Voru heimsóknir í sundlaugina á Seltjarnarnesi tæplega 42 á síðasta ári fyrir hvern íbúa í sveitarfélaginu. Stóð heimsóknafjöldinn á hvern íbúa nokkurn veginn í stað. Í Mosfellsbæ voru heimsóknirnar 36,2 yfir árið fyrir hvern íbúa og lækkaði úr 38 heimsóknum árið áður.
Í Kópavogi voru heimsóknirnar 22,5 á hvern íbúa og fjölgaði úr 21,6 árið áður og í Hafnarfirði voru heimsóknirnar 20,5 og stóðu nokkurn veginn í stað. Í Reykjavík voru heimsóknirnar hins vegar um 13,5 á ári og stóðu í stað milli ára og 13,4 á ári í Garðabæ og fjölgaði úr 12 á ári.
Rétt er að taka fram að í svörum Hafnarfjarðarbæjar og Mosfellsbæjar kom fram að inn í aðsóknartölunum er talinn með fjöldi gesta í samliggjandi líkamsræktarstöðvum. Á það við um tvær af fjórum sundlaugum Hafnarfjarðar, sem jafnframt eru aðsóknarhæstu sundlaugarnar, og Lágafellslaug í Mosfellsbæ, en hún er mun aðsóknarhærri en Varmárlaug í Mosfellsbæ. Ekki komu svör frá öðrum sveitarfélögum hvort tölur samliggjandi líkamsræktarstöðva teldust með. Hins vegar ætti að vera um samanburðarhæfar tölur að ræða milli ára innan hvers sveitarfélags.
Þá er líka rétt að hafa í huga að fjölmargir íbúar fara yfir sveitarfélagamörk til að fara í sína uppáhalds sundlaug eða sundlaugar sem eru nærri þeim. Þá sækja auðvitað margir erlendir gestir sundlaugarnar, ekki síst miðsvæðis í Reykjavík.
Mismunandi gestahópar í Hafnarfirði
Þegar fjöldi gesta í laugum Hafnarfjarðar í fyrra er skoðaður sést að flestir gesta mæta í Ásvallalaug. Það helgast hins vegar af miklum fjölda sem mætir þar í skólasund, á sundæfingar og sem áhorfendur. Ef aðeins er horft til almennings þá mæta fleiri í Suðurbæjarlaug.
Inni í tölum Hafnarfjarðar eru heimsóknir í Gym heilsu í bæði Ásvallalaug og Suðurbæjarlaug.
Hafnarfjörður sendi einnig yfirlit yfir aðsókn síðasta áratuginn og fylgir það hér með, enda sýnir það áhugaverða þróun. Frá árinu 2014 fækkaði gestum nokkuð. Botninn var svo faraldursárið, en aðsóknin tók svo við sér og var í fyrra á pari við það sem hún var áratug áður.
Fleiri gestir þegar afgreiðslutími var lengdur
Í bæði Ásgarðslaug og Álftaneslaug fjölgaði gestum umtalsvert á síðasta ári og voru þeir samtals 255 þúsund í fyrra samanborið við 221 þúsund árið áður. Eru það 15,4% fleiri heimsóknir milli ára. Var afgreiðslutími í Álftarneslaug meðal annars lengdur í fyrra til klukkan tíu á kvöldin á virkum dögum til samræmis við Ásgarðslaug. Jók það kvöldheimsóknir í laugina um 64%, en til samanburðar jókst kvöldaðsókn í Ásgarðslaug um 6,15% á sama tíma.
Í Kópavogi fjölgaði heimsóknum í bæði Salalaug og Kópavogslaug. Kópavogslaug er enn betur sótt en Salalaug og voru gestir þar rétt tæplega 500 þúsund í fyrra og fjölgaði úr 468 þúsund árið áður. Gestir Salalaugar í fyrra voru 383 þúsund samanborið við 369 þúsund árið áður.
Gestir á Seltjarnarnesi voru 192 þúsund í fyrra og stóð sá fjöldi í stað á milli ára.
Í Mosfellsbæ voru gestir í Lágafellslaug 449 þúsund í fyrra og fækkaði þeim örlítið, eða úr 455 þúsund árið áður. Í Varmárlaug var fjöldi gesta 33 þúsund í fyrra en hafði verið 39 þúsund árið áður. Helgast það þó að hluta af því að Varmárlaug var lokuð í þrjá mánuði í fyrra. Samtals fækkaði gestum í laugum Mosfellsbæjar því örlítið, eða um 2,6% milli ára.
Vesturbæjarlaug og Sundhöllin berjast um annað sætið
Gestafjöldi í sundlaugarnar í Reykjavík jókst um 3% í fyrra og bætist það við 5,6% þar áður. Aðsókn jókst í allar laugar í fyrra fyrir utan Árbæjarlaug og Sundhöll Reykjavíkur og yfir tveggja ára tímabil hefur aðsókn aukist í allar laugar nema Sundhöllina.
Hlutfallslega fjölgaði gestum í fyrra mest í Dalslaug, eða um 24% milli ára. Þar á eftir kemur Klébergslaug á Kjalarnesi, en gestum fjölgaði um 13,6% milli ára. Gestafjöldi þar er þó aðeins brot af því sem er í aðrar laugar, en 11.450 manns sóttu laugina í fyrra. Yfir tveggja ára tímabil hefur gestafjöldi í Klébergslaug aukist um 45% og í Dalslaug um 42%.
Laugardalslaugin er mest sótta laug Reykjavíkur og voru gestir þar í fyrra 443 þúsund. Næst þar á eftir kom Vesturbæjarlaug með 323 þúsund gesti. Fjölgaði gestum um 10% milli ára. Árið 2023 höfðu gestir í Sundhöll Reykjavíkur verið aðeins fleiri en í Vesturbæjarlaug, en með fjölgun í Vesturbæjarlaug og fækkun gesta í Sundhöllina tók Vesturbæjarlaug aftur fram úr Sundhöllinni.
Fjórða mest sótta laug Reykjavíkur er Árbæjarlaug og voru gestir þar 234 þúsund í fyrra. Gestir í Grafarvogslaug voru 214 þúsund í fyrra og fjölgaði um 8,2% milli ára. Gestir í Dalslaug voru 178 þúsund í fyrra og fjölgaði sem fyrr segir um 24% milli ára. Að lokum voru gestir í Breiðholtslaug 165 þúsund og fjölgaði þeim um 2,3% milli ára.
31 gestur upp í 1.213 gesti á dag
Til að setja heimsóknarfjöldann í nærtækara samhengi þýða heimsóknartölur í Laugardalslaug að þangað komu að meðaltali 1.213 gestir alla daga ársins í fyrra. Í Vesturbæjarlaug var daglegur gestafjöldi 886, í Dalslaug 486, en í Klébergslaug rúmlega 31 gestur.