Mikill fögnuður hefur ríkt í Yorkshire-dýragarðinum á Englandi undanfarnar vikur eftir að ljónynjan Aysa eignaðist þrjá ljónahvolpa í apríl.
Fæðing hvolpanna kom starfsfólki þó nokkuð á óvart, enda eru þeir afrakstur óvenjulegrar fjölskyldusamsetningar – móðir þeirra eignaðist þá með syni sínum, Tedda. Slíkt getur auðvitað leitt til erfðagalla, en samkvæmt starfsfólki dýragarðsins eru allir hvolparnir bæði hraustir og sprækir.
Vildu ekki slíta fjölskylduna í sundur eftir erfitt ferðalag
Saga fjölskyldunnar er ævintýri líkust. Aysa kom til Englands síðasta vor, beint úr stríðshrjáðri Úkraínu ásamt dætrunum Emi og Santa og syninum Tedda. Ljónin lögðu að baki rúmlega 3.200 kílómetra ferðalag frá Póllandi til að komast í öruggt skjól í Yorkshire. Ákvörðun var tekin um að halda fjölskyldunni saman, enda höfðu þau þurft að dúsa mánuðum saman innandyra, án sólar og fersks lofts, á flóttanum til Bretlands – og enginn vildi slíta fjölskylduna í sundur aftur.
Allir hraustir
Vegna áhyggna af heilsu hvolpanna fylgdist starfsfólk vel með þroska þeirra fyrstu dagana. Við níu vikna heilsufarsskoðun og bólusetningar kom í ljós að allir þrír hvolparnir eru hraustir, sprækir og dafna vel.
„Það er ótrúlega gaman að sjá nýja kynslóð ljóna svona heilbrigða og glaða,“ segir Bex Brown, yfirmaður rándýradeildarinnar hjá dýragarðinum.
Bræðurnir eru sagðir uppátækjasamir og fullir af lífi, á meðan systir þeirra er rólegri og forvitnari gagnvart starfsfólkinu. Persónuleikarnir eru þegar farnir að mótast hjá þessum níu vikna gömlu hvolpum.
Nú eru hvolparnir farnir að eyða meiri tíma úti, kynnast eldri systkinum sínum og föður – sem jú er líka bróðir þeirra Teddi – og öðrum ljónum í hópnum.“ Starfsfólk vonast til að gestir dýragarðsins fái brátt að sjá þá leika sér undir berum himni, en þangað til er hægt að fylgjast með þeim á skjáum í garðinum.
Hér má sjá myndskeið af ljónshvolpunum.
BBC.