lau. 14. júní 2025 11:00
Aldís á BAFTA-verðlaunahátíðinni.
Upplifði skömm þegar hún var yngri

Leikkonan Aldís Amah Hamilton hefur leikið á sviði, í kvikmyndum, sjónvarpsþáttum og skrifaði einnig sjónvarpsseríuna Svarta sanda. Nú stendur hún á tímamótum, þar sem leikurinn, Echoes of the End, er að fara í útgáfu. Nýjar dyr opnast og ferðalög eru framundan. Hún hóf samstarf við Myrkur Games í apríl 2018 og hefur unnið að tölvuleikjaverkefni með fyrirtækinu í rúm sjö ár. Það er lengsta verkefni sem hún hefur tekið þátt í hingað til. 

„Ég verð meira erlendis ásamt kærastanum mínum. Eins ógnvænlegt og ástandið er í Bandaríkjunum þá er stefnan samt tekin aftur á Los Angeles í haust og svo erum við að fara í nokkra daga til Bretlands í næsta mánuði,“ segir Aldís sem er í sambúð með Kolbeini Arnbjörnssyni leikara sem er stjarnan í þáttunum Reykjavík 112 sem sýndir eru í Sjónvarpi Símans Premium. 

„Ég hef alltaf verið mikil tölvuleikjakona,“ segir Aldís, sem á sér rætur í tölvuleikjaáhuga allt frá unga aldri.

 

Hún rifjar upp að hafa upplifað ákveðna skömm tengda tölvuleikjaáhuga þegar hún var yngri.

„Auðvitað vissu mínir nánustu, ég og bestu vinkonur mínar spiluðum mikið saman. En við töluðum ekki „opinberlega“ um þetta – og alls ekki við stráka. Fyrir utan stóra frænda minn, það var hann sem kynnti mig svona almennilega fyrir tölvuleikjum þegar Sega Mega tölvuleikjatölvan var vinsæl,“ segir hún. 

 

Stal tölvu frá systur sinni

„Svo var það amma mín sem gaf mér mitt fyrsta tölvuleikjaspil sem hét Gameboy Color, eftir að ég hafði rænt Gameboy systur minnar sem ég spilaði stjórnlaust, eða eftir því sem ég best gat þar sem foreldrar mínir voru reyndar með mjög skýr mörk varðandi þetta, eins og foreldrar eiga að gera.“

Fjórtán ára gömul keypti hún sér sína fyrstu Playstation tölvu fyrir fermingarpeningana.

„Ég á hana ennþá og stjúpdætur mínar spila núna gamla leiki á henni og það er ótrúlega sætt og gefandi að fylgjast með því.“

 

Á enn allar gömlu Playstation-tölvurnar

Aldís á enn allar sínar Playstation tölvur. Hún á Playstation tvö, þrjú, fjögur og fimm og spilar mikið með kærastanum sínum. „Við erum bæði miklir áhugamenn um tölvuleiki, kannski hefur maður „manifestað“ svona hluti sjálfur en árið 2018 byrjaði ég að vinna með Myrkur Games og 2022 tók ég að mér hlutverk hjá Ninja Theory, sem sköpuðu Hellblade, og það leiddi mig á BAFTA-verðlaunin.“

Aldís hefur komið að öllu mögulegu í rúm sjö ár í verkefninu hjá Myrkur Games. Hún lék, fór í ljósmyndaskannanir, talsetti og lagði stund á bardagalistir til að læra að bera sverð.

„Þetta er mjög eðlilegur fæðingartími tölvuleiks  í fyrsta sinn. Þetta er meira að segja eðlilegt jafnvel þegar það er risi að framleiða hann, þá tekur þetta alltaf einhver ár.“

Leikurinn, Echoes of the End, er fyrsti sögudrifni leikurinn frá Íslandi.

„Það má hugsa um þennan leik sem langa bíómynd þar sem þú tekur þátt. Það eru leiknar senur inni á milli þar sem þú fylgist með vegferð, dramatík og samskiptum persóna,“ segir hún og hefur orð á því að það lítið jafnrétti í tölvuleikjaheiminum.  

„Það er rosalegt ójafnvægi í tölvuleikjaheiminum, ég væri rosa til í að hvetja stelpur til að kynna sér tölvuleiki frekar og allir sem hafa áhuga geta fylgst með á mínum miðlum og líka hjá Myrkur Games.“

 

 

Ástin kviknaði í Svörtu söndum 

Aldís og Kolbeinn keyptu sér íbúð saman síðasta haust og hafa síðan þá verið að gera íbúðina upp. Hún lýsir íbúðinni sem „eilífðarverkefni“. Kolbeinn kærasti hennar er aðalleikari í Reykjavík 112 en þau kynntust í vinnunni. 

„Sem er mest áhorfða sería í þessum dramaglæpaflokki hjá Símanum, en við kynntumst við tökur á Svörtum söndum.“

Í nóvember birtist Aldís á svokölluðum „longlist“ hjá BAFTA sem er listi yfir tíu leikara sem íhugaðir eru til tilnefningar. Margir fjölmiðlar skildu það sem svo að hún væri tilnefnd, sem hún var ekki. „Svo þegar ég var í alvöru tilnefnd í mars kom ekkert – eins og það væri búið að tilkynna það,“ segir Aldís kímin.

Tilkynningin sjálf barst með óvæntum hætti.

„Ég var á leiðinni til LA og var bókstaflega í bílnum á leiðinni upp á flugvöll þegar ég fæ skilaboð frá vinkonu minni sem óskaði mér til hamingju með tilnefninguna til BAFTA-verðlauna, ég fríkaði út og kastaði símanum frá mér og kærastinn minn hélt að eitthvað hræðilegt hefði gerst, mér brá svo mikið, ég bjóst engan veginn við þessu.“

Í kjölfarið fylgdi mánuður af viðburðum í Bretlandi, þar sem Aldís hitti annað tilnefnt fólk og fékk að dvelja á Langham Hótel í London – einu glæsilegasta hóteli borgarinnar. „Þá fékk maður smjörþefinn af þessum heimi, það var mjög skrýtið að upplifa þetta. Mér var svo boðið að gerast meðlimur BAFTA-akademíunnar í kjölfarið.“

 

Leit út eins og fermingarbarn

Talið berst að tísku og fatastíl. Aldís er mikill talsmaður endurnýtingar og er mikið á móti hraðtísku. Hún ákvað því að leigja sér kjól fyrir viðburðinn í kjólaleigu sem hún fann úti.

„Ég lendi á einum sem ég held að verði algjör negla og er búin að fá álit frá öllu mínu fólki og læt senda hann á hótelið. Ég leit út eins og fermingarbarn þegar ég er kominn í hann! Hann átti að vera dökkgylltur en hann var skærbleikur,“ segir hún og bætir við: 

„Ég sá að það var ein kjólaleiga í London í göngufæri frá mér þannig ég hleyp þangað daginn fyrir í neyðarleiðangur. Ég sé bara einhverja sæta vorkjóla þar og er alveg að gefast upp þegar ég sé svo glitta í pallíettur í einu horninu og þetta var draumakjóllinn! Hann var í minni stærð og laus yfir helgina. Mér leið ótrúlega vel í honum og svo skildi ég hann bara eftir á hótelinu í póstkassa og hann var bara sendur til baka. Þetta var svo íslenskt, þetta bara reddaðist.“

Aldís segist þræða borgir eftir vegan veitingastöðum og „second hand“ búðum. „Ég verð aldrei fyrir vonbrigðum.“ 

til baka