lau. 14. júní 2025 06:00
Valdimar Þór Svavarsson svarar spurningum lesenda.
Gamalt einnar nætur gaman kærastans truflar núverandi

Valdi­mar Þór Svavars­son ráðgjafi hjá Fyrsta skref­inu og um­sjón­ar­maður Meðvirknipod­kasts­ins svar­ar spurn­ing­um les­enda Smart­lands. Hér fær hann spurn­ingu frá konu sem hefur áhyggjur af ástarsambandi sínu. 

Hæ hæ Valdimar. 

Ég er trúlofuð manni og við höfum verið saman í fimm ár. Á sínum yngri árum átti hann eitt skipti einna nætur gaman með góðri vinkonu minni en það var aldrei meira en það. Hún er gift öðrum manni sem hún hefur verið með lengi. Það er svo skrýtið að alltaf þegar við hittumst pörin saman þá finnst mér vera einhver neisti á milli unnusta míns og vinkonu minnar. Ég bara veit ekki hvort ég eigi að ræða þetta því það hljómar eins og afbrýðisemi, eða jafnvel ímyndun. Hvað á ég að gera?

Kveðja, 

GHJ

 


Góðan daginn GHJ og takk fyrir þessa spurningu.

Af eðlilegum ástæðum eru alltaf öðru vísi tengsl á milli fólks sem hefur á einhverjum tímapunkti sofið saman. Þrátt fyrir að það hafi gerst fyrir löngu síðan þá er ekkert ólíklegt að sú staðreynd að þau hafi átt einnar nætur gaman, hafi áhrif á samskipti þeirra og tengsl. Það að þú vitir af þessu er líka líklegt til að ýta undir að þú veitir samskiptum þeirra öðru vísi athygli en ef þau ættu ekki þessa reynslu að baki.

Hvort að það er afbrýðissemi getur enginn vitað nema þú sjálf en það er nokkuð eðlileg krafa í samböndum að bera virðingu fyrir maka sínum og láta eiga sig að gera hluti sem ýta undir tortryggni eða afbrýðisemi.

Rótin að afbrýðissemi er ótti við að missa einhvern sem skiptir okkur máli. Það mætti segja að það sé eðlilegt og jafnvel af hinu góða að finna fyrir smá afbrýðissemi, því hún hjálpar okkur að finna hvar mörkin okkar liggja. Afbrýðissemin getur engu að síður verið gríðarlega sársaukafull og erfið viðureignar fyrir þá sem hafa reynslu af því að hafa verið yfirgefnir og hafnað eða eru í vanda með eigið sjálfsvirði.

Í samböndum, og reyndar lífinu öllu, ættum við að geta sagt hvað okkur finnst og hvað við viljum. Það virkar á báða bóga, það er að segja, þá ættu aðrir líka að geta sagt við okkur hvað þeim finnst og hvað þeir vilja.

Fyrsta skrefið væri því að eiga einfaldlega samtal um þetta við makann þinn og segja honum hvað þú ert að upplifa. Þá getur hann sagt þér hvaða augum hann lítur þessi samskipti og hvað honum finnst um þína upplifun. Út frá slíku samtali getur þú betur metið hvort það er eitthvað þarna sem þarf að skoða betur. Með slíku samtali gætuð þið rætt saman hvað þið eruð sátt við og hvað ekki og hvort það er ástæða til að setja einhver mörk sem ekki eru til staðar í dag.

Gangi þér allt í haginn með þetta verkefni.

Kveðja, 

Valdimar Þór Svavarsson ráðgjafi. 

Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Valdimar spurningu HÉR. 

 

 

 

til baka