sun. 15. júní 2025 20:00
Það er betra að vera vel úthvíld eftir langt ferðalag.
Góð ráð fyrir betri svefn í flugi

Það er gaman að ferðast en löng flug geta verið strembin. Til að lenda ferskur og tilbúinn í að skoða áfangastaðinn er gott að hafa náð góðum svefni í flugvélinni. Það getur þó verið erfitt, jafnvel fyrir vana ferðalanga.

Hér eru nokkur ráð sem þú getur stuðst við næst þegar þú ferðast:

Forðastu kaffi og koffín

Ef þú vilt fá góðan svefn skaltu sleppa kaffi og öðrum koffíndrykkjum á ferðalaginu. Ef þú ert að hugsa um að taka svefnlyf eða bætiefni, ráðfærðu þig fyrst við lækni. Einnig er gott að forðast mat eða áfengi sem getur truflað svefninn. Mundu þó að drekka nóg af vatni.

 

Veldu þægilegan fatnað

Við viljum flest vera flott klædd þegar við lendum á áfangastaðnum en þegar kemur að flugferðum ættir þú að leggja áherslu á þægindi. Þægilegur ferðafatnaður er ómissandi ef þú ætlar að ná að sofna í fluginu.

https://www.mbl.is/ferdalog/frettir/2025/06/07/svona_liturdu_best_ut_a_ferdalaginu/

Ekki spara aukahlutina

Til að tryggja góðan svefn skaltu pakka með þér aukahlutum eins og hálspúða, heyrnartólum og augnhlíf. Þessi litlu hlutir sem taka ekki mikið pláss í töskunni eru ómetanlegir þegar þú ferðast langar leiðir og þarft að hvíla þig í fluginu.

 

Fjárfestu í betra sæti

Ef þú getur, fjárfestu í betra sæti fyrir meira rými og meiri þægindi. Þó að það sé dýrara, þá getur sæti í fyrsta farrými hjálpað með svefninn.

 

Veldu sætið vandlega

Veldu vandlega hvaða sæti þú kaupir. Sumir ferðalangar kjósa gluggasæti þar sem þeir geta hvílt höfuðið á glugganum. Einnig er gott að huga að því hvar í vélinni sætið er. Ef það er við eldhús eða salerni er líklega meira um truflanir frá fólki sem gengur framhjá.

Spenna sætisbeltin

Ef þú ert með teppi skaltu festa öryggisbeltið yfir það. Þá þurfa flugþjónarnir ekki að vekja þig til að ganga úr skugga um að þú sér spenntur í beltið.  

 

Fljúga beint

Ef það er mögulegt, reyndu að velja beint flug. Þá hefurðu meiri tíma til að slaka á og hvíla þig þar sem þú þarft ekki að hafa áhyggjur af tengiflugum eða tímanum sem þú hefur til að ná næsta flugi. 

Ekki krossa fætur

Þó að það sé auðvelt að verða órólegur í löngu flugi, þá getur það að hafa krosslagða fætur haft áhrif á blóðrásina og valdið óþægindum til lengri tíma. Hafðu fæturna beina fram og haltu hnjánum örlítið beygðum. Ef þú ert með langa fætur skaltu reyna að geyma ekkert undir sætinu að framan til þess að fá sem mest fótapláss.

 

Slakaðu á

Þetta er hægara sagt en gert en að slaka á er lykilatriði til að fá góðan svefn í flugi. Ef þú getur ekki sofnað strax skaltu ekki stressa þig. Hallaðu þér aftur og reyndu að hvíla þig eins mikið áður en þú lendir á áfangastað.

til baka