sun. 15. júní 2025 22:00
Lykillinn að góðri garðveislu er fyrst og fremst fólkið segir fagurkerinn og arkitektinn Hildur.
Útibíóið í pottinum frekar æðislegt

Hildur Gunnlaugsdóttir er arkitekt og lífskúnstner sem stendur í ströngu við að þróa með sér græna fingur.

Ertu með græna fingur?

„Nei, en ég ætla að reyna að þróa þá með mér og hef mjög gaman af því að læra meira og prófa mig áfram.“

Hvernig myndirðu lýsa garðinum þínum?

„Hann er pínulítill en nýtist mjög vel. Hann er mikið svæðaskiptur, þannig að það er pláss fyrir ótrúlega margt.“

Hvaða blóm er í uppáhaldi í garðinum?

„Ég er að vonast til þess að það verði bóndarósirnar sem ég setti niður í fyrra. Ég var vandræðalega spennt þegar ég sá að þær voru að koma upp aftur. Ég ætla líka að setja niður lauka frá Eldblómum í haust, en ég elska lauka sem poppa óvænt upp aftur og aftur.“

Hvað er best að borða í garðinum?

„Fingramat og drekka gott vín með. Ég elska osta, ávexti og kex og kælda rósavínflösku í góðum félagsskap í garðinum, jafnvel í pottinum.“

Hvað keyptir þú síðast inn á heimilið?

„Ég tók í gegn herbergi fermingarbarnsins míns um daginn þannig að ætli það séu ekki húsgögnin þar og nýja rúmið hennar. Mig dreymir um að kaupa eins handa mér líka.“

Hvað keyptir þú síðast inn í garðinn?

„Gróðurhúsið sem ég setti upp síðasta sumar, sem er dásamleg viðbót við garðinn. Já og bíótjaldið, sem er nú reyndar bara gardína úr Bauhaus en ég get verið með útibíó í pottinum, sem er frekar æðislegt.“

Hvað ertu ánægðust með í garðinum?

„Nýtinguna á honum og aðgengið beint úr stofunni út í garð. Þótt hann sé lítill er endalaust hægt að nýta hann í hitt og þetta. Hann er smá eins og framlenging á stofunni okkar. Við lækkuðum lóðina undir svölunum, en þar er sól fram eftir kvöldi á sumrin og dásamlegt að hanga þar í garðsófa með eldstæðið í gangi.“

 

Hvað finnst þér skemmtilegast að gera í garðinum?

„Vera með dætrum mínum í garðinum. Við erum núna að rækta sumarblóm úr fræjum og síðasta sumar ræktuðum við paprikuplöntur. Svo finnst mér bara gaman að dytta að, en alltaf þegar ég er eitthvað að vesenast í garðinum, jafnvel bara að sópa, koma þær og hjálpa mér eða eru að leika sér nálægt.“

Hver er lykillinn að góðri garðveislu?

„Fyrst og fremst skemmtilegt fólk. En síðan er það fjölbreytt setsvæði, sumir eru í fínum kjólum og vilja sitja á huggulegum sólum og aðrir á teppi á grasinu. Svo er það klárlega að skreyta garðinn meira en minna, ég elska að skreyta með pallíettum, diskókúlum og öðru sem endurkastar birtunni og blómum. Gott vín og góður matur eru auðvitað lykilatriði, ekki er verra ef það er svo fallegt að það virki sem hluti af skreytingunum. Mér finnst líka æðislegt að vera með ætileg blóm og skella þeim út í glösin, en það er frábær leið til þess að vita hver á hvaða glas. Svo er nauðsynlegt að hafa kveikt á pottinum, en góð garðpartí enda yfirleitt í pottinum.“

Af hverju ætti fólk að rækta garðinn sinn?

„Mín kenning er sú að það sé gott fyrir sálina að sjá eitthvað vaxa og dafna, en vísindalegar rannsóknir sýna fram á að okkur manneskjunni líður betur í kringum gróður. Ég held líka að það sé ótrúlega þroskandi fyrir börn að rækta eitthvað.“

Hvar fékkstu innblástur fyrir garðinn?

„Frá höfuðáttunum og ríkjandi vindáttum. Ég reyndi að hanna garðinn þannig að hann væri skjólsæll og sólríkur. Slíkt skiptir sköpum hér á Íslandi, en enginn er úti í skugga og vindi sér til skemmtunar. Mér fannst líka mikilvægt að vera með mismunandi svæði eins og grillsvæði, kósí-sófasvæði í skjóli frá pottinum og að potturinn væri miðsvæðið.“

 

Áttu sérstakan garðfatnað?

„Nei, bara gamla slitna jogginggalla sem eru mikið notaðir í garðinum. Ég sýni mikið frá garðinum á samfélagsmiðlum, þannig að ég held að það sé kominn tími á betri og smartari garðföt. Ég er mjög opin fyrir tillögum.“

Er öll fjölskyldan dugleg í garðinum?

„Nei, ég get ekki sagt það, en ég fékk mjög mikla aðstoð frá systur minni og manninum hennar mömmu þegar ég var að standsetja garðinn og setja upp gróðurhúsið.“

Hvernig var garðurinn þegar þið keyptuð húsið?

„Hann var í raun frekar dásamlegur en um leið glataður. Það dásamlega var yndislega fallegt gullregn sem stóð í miðjum garðinum, það glataða var að það var einhver sérstaklega eitruð týpa og það komst ekkert annað fyrir í garðinum. Ég syrgi samt tréð enn og vildi óska þess að ég ætti nægilega stóran garð til þess að vera með falleg blómstrandi tré.“

Hver er uppáhaldsilmurinn þinn?

„Uppáhalds garðilmurinn minn er af sírenum, rósum og lavender.“

Uppáhaldshlaðvarp?

„Akkúrat núna er það Good Hang með Amy Poehler, elska að hlæja og ég hlæ oft upphátt að þættinum.“

Uppáhaldssamfélagsmiðill?

„TikTok-algóritminn heldur mér oft lengi en Instagram á hjartað mitt.“

Er garðurinn ykkar tilbúinn?

„Ég held að garðurinn verði aldrei alveg tilbúinn, hann heldur vonandi áfram að þróast með okkur og vaxa og dafna. Við erum með tengi fyrir útisturtu en eigum eftir að setja slíka upp. Ég væri líka til í útieldhús og runna með berjum eða blómum. Við erum með ónýta runna úti við götu sem við stefnum á að skipta út fyrir gljámispil og ég ætla að setja rifs fyrir framan pallinn. Minn helsti draumur er kirsuberjatré eða álíka í risapotta uppi á svölum þannig að ég geti horft beint út á blómstrandi tré úr stofunni. Þá hætti ég kannski að syrgja gullregnið.“

til baka