Tinna Rut Torfadóttir sálfræðingur á sálfræðistofunni Sálarlíf svarar spurningum lesenda Smartlands. Hér fær hún spurningu frá manni sem er að upplifa erfiðleika í samskiptum.
Sæl,
ég er að kljást við furðulegt ástand sem hellist yfir mig þegar ég er að tala við fólk, stundum fæ ég einhvers konar gráttilfinningu þegar ég er í miðju samtali og ég finn að andlitið á mér fer allt í grettu og snúning sem mér finnst óþægilegt og óviðráðanlegt, ég er kall um sextugt sem er vanur að halda kúlinu ágætlega. Þetta kemur hvort sem um er að ræða tveggja manna tal eða á stærri fundum. Þetta er nýtt hjá mér, ég er nýlega búinn að skipta um vinnu en þar er miklu minna álag heldur en ég hef verið í síðustu 20 árin svo varla er það álagið.
Ég hef verið um allan heim síðustu árin og fróað fólk og talað tungumál sem ég hef ekki fullkomið vald á en ég er óhræddur við að prófa og skemmti mér jafnmikið og viðmælendurnir þegar ég segi einhverja vitleysu, það plagar mig ekki að vera miðpunktur eða að mér sé hlegið þegar við á. Ég er meðal jafningja á vinnustaðnum, þetta hendir mig nánast aldrei þegar ég er með fjölskyldu og vinum, bara í vinnunni í mýkri málum, aldrei þegar ég lendi í rimmu að karpi við fólk, þar er ég sterkur.
Er eitthvað til ráða?
Kveðja,
BN
Sæll.
Takk fyrir þessa spurningu.
Þetta ástand sem þú lýsir virðist vera nýtt fyrir þér og það er skiljanlegt að það veki spurningar og óþægindi. Það eru ýmsar ástæður sem gætu legið að baki því að þú upplifir þetta einmitt í vinnunni og í mýkri samtölum. Að skipta um vinnu, jafnvel þótt álagið sé minna, getur haft áhrif á líðan þína og samskipti við aðra. Einnig er mögulegt að líkamleg eða tilfinningaleg viðbrögð við nýjum aðstæðum séu að koma fram á óvæntan hátt. Þú nefnir að þú sért sterkur í rökræðum eða harðari samskiptum og að þetta gerist frekar í mýkri samtölum. Það gæti verið merki um að eitthvað djúpt innra með þér sé að koma upp á yfirborðið við ákveðnar aðstæður, jafnvel eitthvað sem tengist sjálfsmynd, tilfinningum eða samskiptamynstri sem er að breytast. Það gæti verið gagnlegt að ræða þetta við sérfræðing, svo sem sálfræðing, sem gæti hjálpað þér að kortleggja hvaða þættir eru að valda þessu og hvernig þú getur unnið með það. Þá myndi ég mæla með því að þú myndir taka eftir mynstrinu t.d.
- Skoða hjá hvaða fólki gerist þetta?
- Í hvernig samræðum?
- Eftir hvernig daga?
Það getur verið hjálplegt að skrifa niður í nokkrar vikur og sjá hvort eitthvert mynstur kemur fram. Einnig er mikilvægt að þú hlustir á þessar tilfinningar en látir þær ekki stjórna þér. Þegar þetta gerist getur þú dregið djúpt andann, viðurkennt í hljóði að þetta sé bara kippur, ekkert sem þú þarft að berjast við, og haldið áfram samtalinu. Það að þú viðurkennir þetta í stað þess að streitast á móti getur minnkað áhrifin með tímanum. Það sem þú ert að lýsa er ekki merki um veikleika, heldur líklegra merki um að þú sért að fara inn í nýtt skeið þar sem hlutar af þér sem áður höfðu ekki áður pláss eru að fá rými. Þetta gerist oft þegar sterkir einstaklingar slaka á eftir langan tíma í háspennu.
Ekki skammast þín fyrir þetta, þetta getur í raun verið merki um persónulega dýpt og þroska.
Bestu kveðjur og gangi þér sem allra best,
Tinna Rut sálfræðingur
Liggur þér eitthvað á hjarta? Þú getur sent Tinnu Rut spurningu HÉR.