Catherine Paiz, 34 ára áhrifavaldur og fyrrverandi eiginkona Austin McBroom, opnar sig um erfiðleikana sem fylgdu skilnaði þeirra eftir nær sex ára hjónaband.
Í nýlegu viðtali í vinsæla hlaðvarpsþættinum Call Her Daddy lýsir hún því hvernig hún komst að framhjáhaldi McBroom á meðan hún gekk með þriðja barn þeirra og hvernig sú uppgötvun skildi eftir djúp sár í hjarta hennar.
Paiz og McBroom byggðu saman upp eina vinsælustu fjölskyldurás YouTube, The ACE Family, sem hefur rúmlega 18 milljónir áskrifenda, en þar gátu áhorfendur fylgst með daglegu lífi hjónanna og barna þeirra.
Telur að hann hafi haldið framhjá sér með allt að 20 konum
Hjónin skildu árið 2024 og fyrr í maí á þessu ári játaði McBroom opinberlega að hafa haldið framhjá henni á meðan þau voru gift.
Í viðtalinu lýsir Paiz hvernig traustið í hjónabandinu brast eftir að hún fór að gruna að eiginmaður hennar væri sér ótrúr. Hún var lengi óviss um hvenær svikin hófust en smám saman kom sannleikurinn í ljós og um fleiri en eitt tilfelli var að ræða. Paiz telur að McBroom hafi haldið framhjá sér með um tuttugu konum.
Fann skilaboð í símanum hans
Paiz rifjaði upp átakanlegt atvik þegar hún fann sannanir um framhjáhaldið. Hún hafði farið í síma McBroom og fann þar löng skilaboð frá annarri konu sem hófust á orðunum „ef þú elskar konuna þína...“. Hún segist þá hafa misst stjórn á sér, öskrað og grátbeðið eiginmann sinn um allan sannleikann.
„Mér líður eins og algjörum bjána. Segðu mér hver hún er, ég er ólétt!“ sagði hún í viðtalinu og lýsti örvæntingu sinni. Hún segir að þessi uppgötvun hafi verið gríðarlegt áfall.
„Það voru ekki bara svikin heldur sú tilfinning að ég hefði verið að lifa í lygi,“ segir hún.
Paiz bætir við að hún hafi aldrei sætt sig við slíka framkomu og leggur áherslu á að börnin þeirra fái ekki að alast upp við þá hugmynd að framhjáhald sé í lagi.
Heldur því fram að Piaz hafi vitað af framhjáhöldum hans
Frásögn Catherine Paiz í hlaðvarpsþættinum tengist útgáfu nýrrar sjálfsævisögu hennar.
Austin McBroom lét ekki umfjölluninni ósvarað og birti færslu á Snapchat þar sem hann ræddi ásakanirnar sem fram koma í bók Paiz. Þar heldur hann því fram að Piaz hafi vitað af framhjáhöldum hans og að hjónin hafi meðvitað ákveðið að halda sambúðinni áfram þrátt fyrir það.
Nú sakar hann hana um að draga málin í dagsljósið til að hagnast fjárhagslega á bókaútgáfunni. Paiz hafnar þessu og lýsir því yfir að tilgangur hennar sé að segja sína eigin sögu og vernda sannleikann fyrir sjálfa sig og börn þeirra.
Hér að neðan má sjá brot af hlaðvarpsvitalinu við Piaz: