TikTok-áhrifavaldurinn Emilie Kiser missti son á hræðilegan hátt eftir að hann fannst viðbragðslaus í sundlaug 12. maí.
Í yfirlýsingu frá lögreglunni í Arizona kemur fram að verið er að rannsaka kringumstæður við slysstað og að rannsókn er enn í gangi.
„Af virðingu við fjölskylduna munum við ekki veita frekari upplýsingar þar til rannsókn er að fullu lokið.“
Kieser er með 3,4 milljónir fylgjenda á TikTok og 1,2 milljónir fylgjenda á Instagram og hefur á miðlunum skrásett líf sitt og eiginmanns síns Brady Kiser, ásamt hinum látna Trigg og eins mánaðar gömlum bróður hans Theodore.