Hertogaynjan af Sussex og lífstílsmógúllinn, Meghan Markle, er sögð hafa hellt sér svo yfir starfsfólk við undirbúning brúðkaups þeirra Harrys Bretaprins að Elísabet II drottning þurfti að stíga inn í.
Harry prins og Meghan giftu sig árið 2018 í St. George's-kapellunni í Windsor-kastala.
„Eitt skipti, í aðdraganda brúðkaupsins fór Meghan í kastalann til að smakka á matseðlinum sem endaði í leiðinlegum samskiptum við starfsfólkið,“ segir konunglegi ættfræðingurinn Katie Nicholl í nýrri bók sinni The New Royals.
Meghan varð uppstökk og sagðist hafa búist við grænmetisfæði á matseðlinum þegar Elísabet drottning steig inn í og sagði: „Meghan, í þessari fjölskyldu tölum við ekki svona við fólk.“
Tilfellið er ekki það eina þar sem Meghan hefur skeytt skapi sínu á starfsfólki kastalans.