Dómnefndir Evrópu gáfu VÆB-bræðrum engin stig í úrslitakeppni Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, Eurovision. 33 stig fengust aftur á móti frá almenningi. Nú liggur fyrir hvaða þjóðir gáfu Íslandi stig.
Athyglisvert er að öll Norðurlöndin gáfu Íslandi stig. Danir gáfu VÆB-bræðrum tíu stig, Finnland sex, Svíþjóð fimm og Noregur þrjú.
Hér má sjá frá hvaða löndum Ísland fékk stig og hversu mörg stigin voru:
- Danmörk - 10 stig
- Finnland - 6 stig
- Svíþjóð - 5 stig
- Eistland - 5 stig
- Noregur - 3 stig
- Slóvenía - 1 stig
- Króatía - 1 stig
- Þýskaland - 1 stig
- Austurríki - 1 stig