Í gærkvöldi fór fram hið svokallaða dómararennsli fyrir úrslit Eurovision í ár. Þar gáfu dómnefndir allra 37 þátttökuþjóða einkunnir sem vega 50 % gegn símakosningu áhorfenda.
Stigin verða afhjúpuð í beinni útsendingu í kvöld og Hera Björk mun kynna stig íslensku dómnefndarinnar.
Þetta er íslenska dómnefndin
- Hulda G. Geirsdóttir - útvarpskona og dagskrárritstjóri RÚV (formaður)
- Sindri Ástmarsson - hjá Senu og Iceland Airwaves
- Aníta Rós Þorsteinsdóttir - söngkona, dansari og danshöfundur
- Andri Þór Jónsson - yfirmaður markaðsmála hjá Öldu Music
- Bjarni Arason - söngvari
Úrslitakvöldið fer fram í St. Jakobshalle í Basel kl. 19.00 í kvöld.
26 lönd keppa, og framlag Íslands, Róa með VÆB-bræðrum, er tíunda atriði kvöldsins.
mbl.is verður með beina lýsingu úr Eurovision-höllinni hér á vefnum í kvöld.