lau. 17. maí 2025 15:28
Yuval Raphael er fulltrúi Ísraels.
Ísraelska söngkonan kallar eftir atkvæðum á íslensku

Yuval Raphael, fulltrúi Ísraels í Eurovision, hvetur Íslendinga til þess að kjósa framlag sitt í úrslitakeppni söngvakeppninnar í kvöld og gerir hún það á íslensku. 

„Hæ, allir saman kjósið New Day Will Rise,“ segir söngkonan í myndskeiði á YouTube-rásinni  „Vote New Day Will Rise“.

Þar má finna yfir 80 myndskeið þar sem Raphael hvetur fólk til að kjósa framlag sitt í söngvakeppninni á ólíkum tungumálum. Hefur hún meðal annars birt myndskeið á þýsku, grísku, ítölsku og pólsku. 

 

Ísrael er spáð ágætu gengi í úrslitakeppninni í kvöld en veðbankar spá landinu í 7. sæti. Þátttaka landsins í Eurovision hefur verið umdeild vegna framgöngu Ísraelshers á Gasa. Einhverjir hafa kallað eftir því að Ísland sniðgangi keppnina vegna þátttöku Ísraela. 

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/22/segir_oedlilegt_ad_israel_taki_thatt_i_eurovision/

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/04/29/nyr_stjornarmadur_ruv_vill_snidganga_eurovision/

Nokkuð bar á á síðustu æfingunni fyrir seinna kvöld undankeppninnar á fimmtudag þegar sex manns trufluðu flutning Raphael. Hópurinn er sagður hafa flautað á meðan æfingunni stóð og haldið uppi fána Palestínu. 

https://www.mbl.is/folk/frettir/2025/05/15/fulltrui_israels_trufladur_a_sidustu_aefingunni/

 

til baka