Útflutningstekjur kísiliðnaðar á Íslandi námu 40,2 milljörðum króna árið 2024 og hafa þær tvöfaldast á fimm árum, samkvæmt nýjum upplýsingum frá Samtökum iðnaðarins (SI) um kísiliðnað á Íslandi. Þar kemur einnig fram að samkeppnishæfni íslenskrar kísilmálmframleiðslu gagnvart erlendum framleiðendum hafi verið að versna.
Morgunblaðið leitaði til Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóra SI:
„Gögnin sýna svo ekki verður um villst að samkeppnishæfni íslenskrar kísilmálmframleiðslu gagnvart erlendum framleiðendum er að versna. Framleiðslan hér á landi er í alþjóðlegri samkeppni við framleiðendur í öðrum löndum sem búa við mun betri rekstrarskilyrði. Íslensku fyrirtækin eru að keppa við fyrirtæki sem jafnvel njóta opinbers stuðnings eða ívilnana. Þess má geta að flutningskostnaður raforku hefur hækkað verulega hér á landi, sem skekkir samkeppnisstöðuna enn frekar.”
Kísiliðnaðurinn skilaði 2,1% af heildarútflutningstekjum landsins árið 2024 og var heildarvelta greinarinnar 41,3 milljarðar króna. Um 97% af veltu koma frá útflutningi. Miklar verðsveiflur hafa einkennt heimsmarkaðinn.
SI bendir á að íslenskir framleiðendur séu í samkeppni við fyrirtæki sem búa við betri rekstrarskilyrði, einkum í Kína, Noregi og Kanada. Evrópusambandið og Bandaríkin hafa skilgreint kísil sem mikilvægt hráefni, en hætta er talin á að samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar og þar með íslenskrar framleiðslu geti minnkað vegna tollastríðs Bandaríkjanna og aukinnar framleiðslugetu Kína.
Í því samhengi segir Sigurður:
„Stjórnvöld ríkja í kringum okkur eru að horfa til þess hvernig hægt er að efla samkeppnishæfni þannig að fyrirtækjum sé gert kleift að skapa sem mest verðmæti. Ef við fylgjum ekki þeirri þróun er mikil hætta á að við drögumst aftur úr. Við höfum fagnað því að ríkisstjórnin hafi boðað mótun iðnaðarstefnu, sem við teljum gríðarlega mikilvægt skref í átt að því að nýta öll þau mörgu tækifæri sem liggja um allt land. Það er vel til þess vinnandi að hraða slíkri vinnu til að auka verðmætasköpun og halda atvinnustigi uppi. Nú þegar töluverðar breytingar eru að verða á viðskiptaháttum milli landa verður þetta verkefni enn mikilvægara. Samkeppnishæfni Íslands er undir.“