Herskip bandalagsríkja Atlantshafsbandalagsins hófu að koma til hafnar í Reykjavík í morgun en skipin eru hingað komin til að taka þátt í kafbátaeftirlitsæfingunni Dynamic Mongoose sem hefst eftir helgi og er haldin á vegum Atlantshafsbandalagsins.
Frá þessu er greint á vef Landhelgisgæslunnar en þar segir að æfingin sé árleg og fari fram suður af landinu og á hafsvæðinu á milli Íslands og Noregs.
Dynamic Mongoose hefst formlega á mánudag og stendur til 9. maí. Ísland er gestgjafi æfingarinnar að þessu sinni.
Herskipin sem eru væntanleg til hafnar í Reykjavík í dag eru skipin HNLMS Tromp frá Hollandi, FGS Bayern og FGS Rhön frá Þýskalandi, ORP General Kazimierz Pulaski frá Póllandi auk þýsks kafbáts. Þrjú skipanna eru hluti af fastaflota NATO (SNMG1). Þá mun varðskipið Freyja taka þátt í æfingunni auk þyrlusveitar Landhelgisgæslunnar.