mið. 23. apr. 2025 17:05
Heiðmörk er vinsælasta útivistarsvæðið í Reykjavík og nýta margir sér þann kost að keyra um svæðið.
Heiðmörk verði áfram aðgengilegt útivistarsvæði

Reykjavíkurborg mun leggja áherslu á að Heiðmörk verði áfram aðgengilegt og fjölbreytt útivistarsvæði, en borgin vinnur nú að mótun nýs deiliskipulags fyrir Heiðmörk í samvinnu við Veitur, Skógræktarfélag Reykjavíkur, Orkuveitu Reykjavíkur og Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.

Þetta segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Veitur ætla að banna einkabílinn í Heiðmörk

Vilja tryggja öryggi og gæði grunnvatns til framtíðar

Er deiliskipulagssvæðið um 23,5 ferkílómetrar að stærð og afmarkast af Suðurlandsvegi til norðurs, ánni Bugðu, Elliðavatni og sveitarfélagamörkum Kópavogs til vesturs, gömlu Heiðmerkurgirðingunni til austurs og sveitarfélagamörkum Garðabæjar til suðurs.

Mun deiliskipulagið aðeins ná yfir Reykjavíkurhluta Heiðmerkur.

Þá er undirbúningsvinnan á hendi skipulagsfulltrúa Reykjavíkur sem hefur átt gott samtal við notendur svæðisins og hagsmunaaðila og mun það samtal halda áfram deiliskipulagsferlið á enda, að því er segir í tilkynningunni.

Verður það haft að leiðarljósi að tryggja öryggi og gæði grunnvatns til langrar framtíðar sem og að svæðið nýtist áfram til útivistar í sátt við vatnsvernd.

Bæjarstjórar efast allir um bílabannið

Dregið verði úr umferð ökutækja á grannsvæði vatnsverndar

„Eitt af markmiðum deiliskipulagsins er að dregið verði úr umferð ökutækja á grannsvæði vatnsverndar til þess að koma í veg fyrir möguleg mengunarslys. Hvernig þessi takmörkun verður útfærð er svo verkefni deiliskipulagsins. Skilgreina þarf upphafsstaði útivistar með greinargóðum upplýsingum um svæðið.

Mikilvægt er að styrkja tengingu byggðar við Heiðmörk með áherslu á góð tengsl við almenningssamgöngukerfi og sjálfbæra ferðamáta,“ segir í tilkynningunni.

Almenningi gefst kostur á að koma með ábendingar

Þá er unnið að sérstöku áhættumati til að meta þá þætti á svæðinu sem geti mögulega valdið mengun í vatni. Verður sú niðurstaða notuð til að koma með mótvægisaðgerðir til þess að minnka líkur á mengun á svæðinu.

Mun skipulagslýsing fyrir deiliskipulagið fara í auglýsingu í maí og verður þá almenningi gefinn kostur á að koma með athugasemdir og ábendingar.

til baka