fim. 24. apr. 2025 12:30
Fátt er betra á grillið en girnilegur hamborgari á sumardaginn fyrsta. Hér er að finna nokkrar af vinsælustu hamborgarauppskriftunum sem hafa slegið í gegn á vefnum.
Vinsælustu hamborgarnir fyrir sumargrillið

Það er ekki úr vegi að taka saman nokkrar af okkar bestu hamborgarauppskriftum í tilefni þess að sumardagurinn fyrsti er runninn upp í allri sinni dýrð. Hér eru bestu hamborgarar matarvefsins á einum stað sem vert er að prófa og slá í gegn í næstu grillaveislu.

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/05/03/fylltur_kolagrilladur_hamborgari_hrefnu/

Kola­grillaði osta- og bei­kon­fyllti ham­borg­ar­inn henn­ar Hrefnu lít­ur vel út. Löðrandi jap­anska maj­ódress­ing­in og græn­metið fær líka að njóta sín.

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/06/17/saelkeraborgarinn_hans_jafets_slaer_oll_met/

Sæl­kera­borg­ar­inn hans Jafets landsliðskokks með spældu eggi og heimagerðri lauksultu.

https://www.mbl.is/matur/allirgrilla/2022/06/21/luxusborgari_med_laukhringjum_beikoni_og_dala_hring/

Hér erum við með dýr­ind­is lúx­us­borg­ara sem búið er að toppa með osti. Það er þó eng­inn venju­leg­ur ost­ur held­ur sneið af Dala-hring.

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/08/16/subbupesi_uppahaldshamborgarinn_hans_huga/

Ham­borg­ar­inn hans Huga landsliðskokks er hinn girni­leg­asti með bræddri osta­blöndu, beikonsultu, pikkluðum rauðlauk, steikt­um svepp­um og chipotle-sósu.

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/11/01/wagyu_luxusborgarinn_hans_bjarka_er_rosalegur/

Lúxushamborgarinn hans Bjarka landsliðskokks er rosalegur en loka­hnikk­ur­inn er að setja Foie gras ofan brauðlokið. 

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/07/02/uppahaldshamborgari_kristinar_landslidskokks_slo_i_/

Kristín Birta landsliðskokkur sló í gegn með þessum sælkeraborgara með parmaskinku, sterkum osti og chimmichurri.

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/06/14/omotstaedilegur_kolagrilladur_hamborgari_snaedisar/

Ómót­stæðileg­ur kola­grillaður ham­borg­ari með brædd­um ostsneiðum, rauðlaukssultu, trufflu­majó, sal­at­blaði, steiktri pancettu, pikklaðri gúrku og tóm­atsneiðum er uppáhalds hjá fyrirliða íslenska kokkalandsliðisins, Snædísi Jónsdóttur.

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/06/02/bbq_hamborgari_med_grilludum_ananas/

Guðdómlegur BBQ-hamborgari með grilluðum ananas og heimagerðri BBQ-sósu er uppáhaldshamborgarinn hennar Ólafar, betur þekkt sem eftirréttadrottning okkar landsmanna. Borgarann ber hún fram með alvöru frönskum og mísó-majónesi. 

https://www.mbl.is/matur/frettir/2024/04/23/kimchi_beikonborgarar_med_spaesi_sosu/

Snorri Guðmundsson matgæðingur með meiru hefur sannað að kimchi og beikon eru bestu vinir og er algjör bragðbomba á þessum hamborgara. Hann er spæsí, saltur og smá fönkí.

 

til baka