Malasíska félagið Berjaya Food Berhad mun opna tvö kaffihús hér á landi undir merkjum Starbucks og mun það fyrsta verða opnað í maí næstkomandi. Kaffihúsin verða staðsett í miðbæ Reykjavíkur og verður tilkynnt um nákvæma staðsetningu og tímasetningu á opnun þeirra á næstu vikum að því fram kemur i tilkynningu frá Berjaya Food Berhad.
Lögð áhersla á persónulegt og hlýlegt andrúmsloft
Rekstur kaffihúsanna er í höndum malasíska fyrirtækisins Berjaya Food Berhad í gegnum systurfélag sitt Berjaya Food International, sem hefur tryggt sér rekstrarleyfi Starbucks í Finnlandi og Danmörku auk Íslands. Hönnun staðanna og þjónusta mun taka mið af því sem viðgengst á Starbucks í Malasíu. Á kaffihúsunum verður lögð áhersla á persónulegt og hlýlegt andrúmsloft með fjölbreytt úrval af kaffidrykkjum og veitingum sem Starbucks er þekkt fyrir um heim allan.
„Við erum spennt að geta loksins kynnt Starbucks fyrir Íslendingum og vonumst til að kaffihúsin verði áfangastaður fyrir frábært kaffi og góðar samverustundir,“ segir Dato’ Sydney Quays, forstjóri Berjaya Food Berhad.
„Við hlökkum til að kynna hið einstaka Starbucks-andrúmsloft ásamt hlýlegri malasískri gestrisni. Á sama tíma leggjum við áherslu á að styrkja íslenskt samfélag með því að skapa atvinnu og eiga í samstarfi við innlend fyrirtæki með kaupum á vörum og þjónustu,“ bætir hann við.
Gleður að auka viðveru kaffihúsanna á Norðurlöndum
Fyrirtækið stendur fast við þau gildi og loforð sem viðskiptavinir Starbucks þekkja frá öðrum mörkuðum þar sem markmiðið er að bjóða upp á úrvals kaffi og stuðla að jákvæðum samfélagslegum áhrifum.
„Það gleður okkur að auka viðveru okkar á Norðurlöndum í samstarfi við traustan og langvarandi viðskiptafélaga okkar, Berjaya Food Berhad, og leggja okkar af mörkum til líflegrar kaffimenningar á svæðinu,“ segir Duncan Moir, forstjóri Starbucks í Evrópu, Miðausturlöndum og Afríku. „Á grundvelli 26 ára samstarfs við Berjaya Food, hlökkum við til að tengjast enn fleiri viðskiptavinum í gegnum Starbucks-kaffi og leggja metnað í að fjárfesta með varanlegum áhrifum í velferð starfsfólksins okkar og samfélagsins alls,“ bætir Moir við.
Malasískt hlutafélag stofnað árið 2009
Berjaya Food Berhad er malasískt hlutafélag sem var stofnað í Malasíu árið 2009. Félagið á og rekur ýmis þekkt vörumerki, þar á meðal Starbucks Coffee í Malasíu, Brúnei og á Íslandi, Paris Baguette í Malasíu og á Filippseyjum, auk Kenny Rogers Roasters í Malasíu. Að auki kom félagið Joybean-vörulínunni á markað í gegnum dótturfyrirtækið Bestari Food Trading.
Rekur yfir 40 þúsund kaffihús
Starbucks hefur frá árinu 1971 lagt áherslu á siðferðilega og ábyrga öflun og vandaða ristun á hágæða arabica-kaffi. Núna rekur fyrirtækið yfir 40 þúsund kaffihús um allan heim og er leiðandi á heimsvísu þegar kemur að sérvöldu kaffi. Starbucks leitast við að skapa einstaka upplifun fyrir viðskiptavini sína með áherslu á skýra sýn og skuldbindingu við gæði.