þri. 22. apr. 2025 10:35
Elizabeth Hurley og Billy Ray Cyrus eru sögð vera nýjasta parið í Hollywood.
Hurley nældi sér í kúreka

Enska leikkonan Elizabeth Hurley og bandaríski sveitasöngvarinn Billy Ray Cyrus eru sögð vera nýjasta parið í Hollywood eftir að Hurley deildi sætri mynd af þeim á Instagram-síðu sinni í gærdag, en á myndinni sést Cyrus smella kossi á kinn leikkonunnar.

„Gleðilega páska,“ skrifaði Hurley við myndina.

Hurley, einna þekktust fyrir hlutverk sitt í kvikmyndinni Austin Powers: International Man of Mystery, og Cyrus, þekktastur fyrir lagasmellinn Achy Breaky Heart, kynntust við gerð kvikmyndarinnar Christmas in Paradise árið 2022 og urðu þau strax mjög góðir vinir.

Á þeim tíma var Cyrus í sambandi með áströlsku tónlistarkonunni Firerose, en þau gengu í hjónaband í október 2023 aðeins til að skilja sjö mánuðum seinna.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/06/12/billy_ray_cyrus_saekir_um_skilnad/

https://www.mbl.is/folk/frettir/2025/01/24/i_heldur_annarlegu_astandi_a_svidinu/

Cyrus var kvæntur Tish Cyrus í 28 ár og eignuðust þau fimm börn sem eru uppkomin. Hann er faðir söngkonunnar Miley Cyrus en systir hennar, Noah Cyrus, hefur líka gert það gott á leik- og tónlistarsviðinu. Hin systkinin eru Brandi, Trace og Braison. Þar með eru ekki öll börn Cyrus upptalin því hann á líka soninn Christopher Cody með Kristen Luckey en þau áttu í ástarsambandi áður en Cyrus giftist Tish Cyrus.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2023/06/16/leikstyrdi_modur_sinni_i_erotiskum_senum/

Hurley á einn son, Damian Hurley, með bandaríska viðskiptamanninum Steve Bing. Hún var gift Arun Nayar á árunum 2007 til 2011 og átti einnig í langtímasambandi með leikaranum Hugh Grant.

View this post on Instagram

A post shared by Elizabeth Hurley (@elizabethhurley1)

 

 

 

til baka