Fjórir íslenskir kastarar taka þátt í hinu árlega Vetrarkastmóti Evrópu sem fer að þessu sinni fram á Kýpur og er haldið á morgun og á sunnudaginn.
Erna Sóley Gunnarsdóttir keppir í kúluvarpi, Guðni Valur Guðnason og Hera Christensen í kringlukasti og Hilmar Örn Jónsson í sleggjukasti.
Erna, Guðni og Hilmar eru ríkjandi Íslandsmethafar í sínum greinum og Hera, sem keppir í flokki U23 ára, á aldursflokkametið 19 ára og yngri, sem jafnframt er fjórði besti árangur íslenskrar konu í kringlukasti.
Íslandsmet Hilmars (77,10 m) og Guðna (69,35 m) eru frá árinu 2020 en Erna sló Íslandsmetið í kúluvarpi síðasta sumar þegar hún kastaði 17,91 metra.