Ársreikningur Félagsbústađa fyrir síđasta ár var stađfestur á stjórnarfundi félagsins í gćr en samkvćmt reikningnum nam hagnađur á rekstri ţess tćpum 1.300 milljónum króna á árinu.
Félagiđ er óhagnađardrifiđ hlutafélag í eigu Reykjavíkurborgar en hlutverk ţess er ađ leigja út félagslegt leiguhúsnćđi sem úthlutađ hefur veriđ af velferđarsviđi borgarinnar.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/03/14/starfsfolk_segir_felagsbustadi_ostarfhaefa/
Skilar ekki tekjum til rekstrar
Kjartan Magnússon, stjórnarmađur í Félagsbústöđum og borgarfulltrúi Sjálfstćđisflokksins, gerđi athugasemdir viđ reikninginn í bókun í fundargerđ.
Bendir Kjartan á í bókun sinni ađ ekki gefi rétta mynd af rekstri Félagsbústađa ađ taka til matsbreytingu fjárfestingareigna upp á tćpar 2.600 milljónir króna eins og gert sé. Telur hann slíka virđishćkkun á fasteignum félagsins hafa veriđ gerđa til ađ fegra rekstrarreikning félagsins.
„Enda er slík matsbreyting reiknuđ stćrđ, sem skilar ekki raunverulegum tekjum til rekstrarins.“ Án umrćddrar matsbreytingar nemur tap félagsins 1.298 milljónum króna á árinu 2024.
Frekari lántökur fram undan
Rekstrartekjur Félagsbústađa námu 7.078 milljónum króna á árinu, rekstrargjöld 4.104 milljónum og hrein fjármagnsgjöld 4.272 milljónum króna.
Kjartan bendir ţá á ađ veltufé frá rekstri nemi einungis 1.654 milljónum króna á árinu og rétt standi undir afborgunum langtímalána, sem nemi 1.606 milljónum.
Ţannig sé afar lítiđ svigrúm fyrir hendi til fjárfestinga og líklegt ađ ţćr verđi fjármagnađar međ enn frekari lántökum en skuldir félagsins námu tćpum 65 milljörđum króna í árslok og jukust um 2,9% á milli ára.
Langt undir ţví sem eđlilegt sé
Kjartan hefur einnig áhyggjur af veltufjárhlutfalli í árslok sem er ađeins 0,46, langt undir ţví sem eđlilegt getur talist. Alla jafna er taliđ ćskilegt ađ veltufjárhlutfall sé ekki undir 1,0.
Handbćrt fé Félagsbústađa í árslok var ađeins 46 milljónir króna og lćkkađi ţađ um 383 milljónir úr 429 milljónum á milli ára.
Nánari umfjöllun er ađ finna í Morgunblađinu sem komu út í dag, föstudag.