Athafnamaðurinn Kristján Einar Sigurbjörnsson, betur þekktur sem Kleini, deildi morgunrútínunni með fylgjendum sínum á Instagram. Kristján er vinsæll á Instagram, þar sem hann fer undir nafninu kleiini, og er með tæplega 7,500 fylgjendur.
Kristján tók nokkrar mínútur til að svara spurningum sem hann fékk frá forvitnum fylgjendum.
https://www.mbl.is/smartland/frami/2024/12/05/kleini_byggir_upp_fyrirtaeki_an_thess_ad_leggja_ut_/
Byrjar daginn 3:00
Ein spurninganna var um það hvað hann gerði eiginlega á nóttunni og hvort hann verja tíma sínum í að kaupa hlutabréf. Svarið hefur komið á óvart en hann kýs að byrja daginn alveg einstaklega snemma.
„Hvað geri ég á nóttunni? Nei, nei. Í fyrsta lagi er þetta morguninn. Ég kýs að byrja dagana mína þrjú, hálf fjögur á morgnana, til að koma sem mestu í verk yfir daginn. Eftir klukkan sex, sjö á kvöldin er maður ekkert að vinna lengur. Maður er bara að skrolla í algjöru tilgangsleysi, enginn fókus og bara „waste of time,“ segir Kristján meðal annars.
„Ef ég byrja daginn minn klukkan þrjú, byrja að vinna klukkan þrjú þá er ég kominn í háttinn um sjö til átta um kvöld. Þá er ég ekki að gera þetta skroll, ég er að nýta tímann betur til að gera eitthvað úr lífinu. Ég er ekki að fá mikið út úr lífinu með því að horfa á einhvern borða grænt epli.“
Næsta spurning snýr að því hversu löngum svefni hann nái hverju sinni.
„Ég held mig við sex tíma, ef ég fer ofar en það þá er ég sljór en ef ég fer minna en það þá verð ég fyrr sljór. Svo sex tímar eru temmileg lengd.“
Ætli þetta sé lausnin við að sleppa við tilgangslausan símatíma á kvöldin?