fös. 14. mars 2025 11:52
Reykjavíkurborg hefur samþykkt tilboð um skógarhögg í Öskjuhlíð.
Borgarstjóri vék af fundi fyrir afgreiðslu

Borgarráð samþykkti í gær aðgerðaáætlun um trjáfellingar í Öskjuhlíð en Samgöngustofa hafði eins og kunnugt er sent tilskipun til Isavia um að loka austur/vestur-flugbrautinni 8. febrúar sl. vegna hæðar trjáa sem ógnuðu flugöryggi.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/03/12/fella_900_tre_til_vidbotar_i_thagu_flugoryggis/

Talsverð umræða var um málið í borgarráði og vék borgarstjóri af fundi áður en málið var afgreitt. Ástæðan er sú að nemendur Hagaskóla komu í heimsókn í Ráðhúsið og fór borgarstjóri af fundinum til að taka á móti þeim. Til upprifjunar má minna á að Einar Þorsteinsson sleit meirihlutasamstarfi við Samfylkinguna, Viðreisn og Pírata þar sem Heiða Björg Hilmisdóttir, nýr oddviti, hafði hótað slitum vegna flugvallarins.

Gagnrýna seinagang og stjórnsýslu á báða bóga

Í bókun meirihluta Samfylkingar, Sósíalistaflokksins, Flokks fólksins og VG kemur fram að óskýrleiki hafi einkennt ferlið sem hafi gert borginni erfitt fyrir. Þar kemur jafnframt fram að minnisblað Isavia frá september 2024, þar sem boðuð var lokun flugbrautar, hafi ekki borist borginni fyrr en í janúar 2025. Meirihlutinn áréttar að skógurinn sé mikilvægt upplifunar- og útivistarsvæði fyrir borgarbúa og þeirra hagsmuna verði áfram gætt samhliða því að standa vörð um flugöryggi og að eðlilegast sé að ríkið standi straum af trjáfellingunni.

Fulltrúar Sjálfstæðisflokks gagnrýndu seinagang borgarinnar í málinu, enda hafi tafirnar haft afdrifaríkar afleiðingar fyrir sjúkraflugið. Borgarráðsfulltrúi Framsóknarflokksins lagði fram bókun þess efnis að hann fagnaði því að fram væri komin aðgerðaáætlun sem tryggði rekstraröryggi flugvallarins og tók undir með meirihlutanum að ríkið skyldi greiða þann kostnað sem af framkvæmdinni hlýst. Hann tók jafnframt undir gagnrýni meirihlutans á stjórnsýslu Samgöngustofu í málinu. Í bókun borgarráðsfulltrúa Viðreisnar kom fram ánægja um að aðgerðir væru hafnar til að tryggja sjúkra- og áætlunarflug.

Lesa má nánar um málið í Morgunblaðinu í dag

til baka