fös. 14. mars 2025 11:30
Gleðin var í fyrirrúmi á opnunarhófi Food and Fun sem haldið var á hinum fræga bar, TÖLT á The Reykjavík EDITION hóteli.
Mikið var um dýrðir á opnunarhófi Food & Fun á TÖLT

Matarhátíðin Food & Fun var formlega sett í stórglæsilegu opnunarhófi sem fram fór á TÖLT barnum á The Reykjavík EDITION hótelinu við höfnina í hjarta miðborgarinnar þar sem gestir komu saman til að fagna upphafinu á skemmtilegustu matarhátíð ársins.

Gestakokkarnir í ár koma alls staðar að og eru jafn fjölbreyttir og þeir eru margir. Allir sem hafa ánægju af því að fara út að borða og njóta ættu að finna eitthvað við sitt hæfi, hvort sem verið er að leitast eftir margra stjörnu Michelin-upplifunum eða glænýjum brögðum og upplifunum sem finnast oft ekki á Íslandi. 

https://www.mbl.is/matur/frettir/2025/03/07/matarhatidin_food_og_fun_verdur_funheit_i_ar/

https://www.mbl.is/matur/frettir/2025/03/08/heitustu_kokkarnir_bjoda_upp_a_heimsklassa_matarupp/

Eins og fram hefur komið á matarvefi mbl.is taka 17 veitingastaðir þátt í ár og matseðlarnir eru hreint út sagt ómóstæðilegar spennandi. Það mun reynast mörgum mjög erfitt að velja hvert skal fara.

Boðið var upp á dýrindis veitingar

Teymið á The Reykjavík EDITION hótelinu bauð upp á dýrindis veitingar sem vöktu verðskuldaða athygli fyrir framsetningu, bragð og áferð. Einnig var boðið upp á nýstárlega og klassíska kokteila sem verða í boði alla helgina á sérstökum pop up viðburði á bæði ROOF barnum upp í á sjöundu hæð þar sem boðið er upp á eitt fegursta útsýni yfir borgina og inni á TÖLT sem þykir einn leyndardómsfyllsti bar landsins.

 

Óli Hall framkvæmdastjóri Food & Fun setti hátíðina formlega við þetta tækifæri við mikinn fögnuð gesta.

„Ég er mögulega hlutdrægur en þetta er skemmtilegasta helgi ársins. Við erum að fá til landsins framúrskarandi snillinga og mikla karaktera sem skapa einstaka matarupplifun ásamt bestu veitingastöðum borgarinnar,“ segir Óli en hann hefur undirbúið hátíðina síðustu vikur og mánuði í samstarfi við alla þá veitingastaði sem taka þátt.

 

Kokkur segir sögu sína með hverjum rétti

„Það er svo miklu meira á bak við það að fara út að borða í góðum hópi en bara maturinn. Það snýst um alla upplifunina í kring, stemninguna, andrúmsloftið og hvernig kokkurinn nær að segja sína sögu með hverjum rétti.

Svo er það náttúrulega þannig að allir hafa einhverja skoðun á mat, og á Food & Fun fjölgar matargagnrýnendum landsins gríðarlega. Sjaldan er jafn mikið pælt og spekúlerað í því sem er á boðstólum og við hvetjum alla til að deila myndum og sögum af sínum upplifunum,“ segir Óli sposkur á svip.

„En framar öllu er það einstaka stemningin sem myndast á Food & Fun og veitingastöðunum sem taka þátt. Það er alltaf áþreifanleg orka í loftinu, eitthvað sérstakt sem vonandi skilar sér í réttum gestakokkanna og beinustu leið ofan í maga gesta,“ segir Óli að lokum og hlakkar til að njóta þess sem matarhelgin mun bjóða upp á.

Myndirnar lýsa vel gleðinni sem ríkti á TÖLT þegar matarhátíðin var formlega sett.

 

til baka