fim. 13. mars 2025 16:29
Vladimír Pútín, forseti Rússlands, á blaðamannafundinum síðdegis í dag.
Segist ekki slá vopnahlé út af borðinu

Vladimír Pútín kveðst ekki slá út af borðinu tillögu Bandaríkjanna um vopnahlé, sem Úkraínumenn hafa þegar samþykkt. Hann segir þó að enn sé fjölda spurninga ósvarað og að leysa þurfi alvarleg mál.

Þetta kom fram á blaðamannafundi fyrir stundu. Sagði Pútín að til að ná friði þyrfti jafnframt að ráðast að rótum átakanna.

Stríðið hófst í febrúar fyrir þremur árum þegar rússneski herinn réðst inn í Úkraínu.

Pútín var spurður hvort hann teldi stjórnvöld Úkraínu reiðubúin fyrir vopnahlé og hvort að Bandaríkin hefðu upplýst hann.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/03/11/jakvaed_skref_i_dag_boltinn_nu_hja_russum/

Þakkaði Trump fyrir áhugann

Byrjaði hann þá á að þakka Donald Trump Bandaríkjaforseta fyrir að hafa einbeitt sér „svo mjög“ að því að ná fram samkomulagi í Úkraínu.

Sagði hann Rússland sammála tillögunni að vopnahléi en að það þyrfti að leiða að langvarandi friði.

„Við erum sammála tillögunni um að hætta átökum, en það þyrfti að hafa í för með sér frið til frambúðar og fjarlægja undirliggjandi rætur þessarar krísu,“ sagði forsetinn.

Kvaðst hann sannfærður um að Úkraína hefði ítrekað átt að biðja Bandaríkin um fund, eins og þann sem er nýlokið í Sádi-Arabíu, þegar litið er til stöðunnar í átökunum.

„Hver mun gefa skipanir um að hætta átökunum, og hvers virði verða þær skipanir?“ spurði Pútín.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/03/13/vilja_fa_kynningu_adur_en_akvordun_er_tekin/

Kannski símtal við Trump

Spurði hann einnig hver myndi ákveða hvar brotið hefði verið gegn mögulegu samkomulagi um vopnahlé á 2.000 kílómetra langri línu, og vísaði þá að líkindum til víglínunnar eða landamæra ríkjanna.

„Öll þessi mál þarf að grandskoða frá báðum hliðum,“ sagði hann.

Bætti Pútín við að hann teldi Rússa „þurfa að semja við bandaríska kollega okkar og félaga“, og mögulega eiga símtal við Trump.

„Hugmyndin um að enda þessa deilu með friðsamlegum hætti, við styðjum hana.“

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2025/03/12/segir_vidtaeka_samstodu_vera_ad_myndast/

til baka