fim. 13. mars 2025 15:15
Þorsteinn Sigurðsson forstjóri Hafrannsóknastofnunar sýnir Hönnu Katrínu Friðriksson atvinnuvegaráðherra hið nýja skip.
Myndir: Glatt á hjalla í Hafnarfirði

Mikil gleði var á athöfn í höfuðstöðvum Hafrannsóknastofnunar í gær er stofnunin fékk hið nýja hafrannsóknaskip Þórunni Þórðardóttur HF-300 formlega afhent. Sjá mátti bros á hverju andliti enda hafa liðið rúmir tveir áratugir frá því að hófst umræða um þörf á nýju skipi í stað Bjarna Sæmundssonar HF sem seldur var nýverið til Noregs.

Fjöldi boðsgesta safnaðist saman í höfðustöðvunum til að fagna þessum tímamótum.

https://www.mbl.is/200milur/frettir/2025/03/13/hafrannsoknaskipi_fagnad/

„Með öflugum rannsóknum getum við tryggt að ákvarðanir sem varða nýtingu auðlinda hafsins verði teknar á traustum vísindalegum grunni. Slíkar ákvarðanir eru ekki aðeins nauðsynlegar fyrir efnahagslega velferð þjóðarinnar, heldur einnig fyrir verndun líffræðilegrar fjölbreytni og sjálfbærni auðlindanna til framtíðar“ sagði atvinnuvegaráðherra í ræðu sinni.

„Í þessu samhengi gegnir Hafrannsóknastofnun lykilhlutverki, þar sem þekking og ráðgjöf stofnunarinnar er grundvallarforsenda þess að við náum markmiðum okkar um sjálfbæra nýtingu auðlinda hafsins,“ sagði hún.

 

 

 

 

 

 

 

til baka