miđ. 12. mars 2025 22:15
Tónlistarkonan Bríet hlaut verđlaun fyrir plötu ársins ásamt rapparanum Birni, 1000 orđ.
Ţessi hljóta Íslensku tónlistarverđlaunin 2025

Íslensku tónlistarverđlaunin 2025 voru veitt Silfurbergi Hörpu í kvöld en sýnt var frá athöfninni í beinni útsendingu á RÚV. 

Hljómplötuútgefandinn Steinar Berg Ísleifsson tók viđ heiđursverđlaunum hátíđarinnar en hljómsveitin Múr var valin bjartasta vonin ađ ţessu sinni. 

Verđlaun fyrir bestu plötur ársins í hinum ýmsu flokkum komu í hlut Emiliönu Torrini, Bríetar og Birnis, Supersport!, Sifjar Margrétar Tulinius, Guđmundar Péturssonar, Snorra Hallgrímssonar og Kjartans Valdemarssonar og Stórsveitar Reykjavíkur. 

Óskar Guđjónsson, Magnús Jóhann Ragnarsson, Una Torfa og Víkingur Heiđar Ólafsson voru valin flytjendur ársins. 

Friđrik Ómar sá um ađ stýra dagskránni en Rebekka Blöndal, Múr, Bríet, Sif Tulinius, Kaktus Einarsson og Nýdönsk voru međal ţeirra sem sáu um tónlistaratriđi.

 

Steinar Berg heiđrađur

„Ţađ er nokkuđ um liđiđ síđan ég hćtti í tónlistarútgáfu eftir ađ hafa eytt starfsćvinni í ţađ. Ţannig ađ ţađ kom svolítiđ á óvart ađ ţetta skyldi koma upp núna,“ segir heiđursverđlaunahafinn Steinar Berg Ísleifsson í samtali viđ Morgunblađiđ.

„Ţetta starf hefur ekki endilega alltaf veriđ ţakklátt og ţađ hefur oft veriđ deilt á útgefendur svo ég átti ekki von á ţessu. Ég tel nú engu ađ síđur ađ ég og mitt starfsfólk höfum af mikilli ástríđu lagt gott til íslenskrar tónlistarútgáfu í ansi mörg ár. Ég er ţakklátur fyrir veitingu ţessara heiđursverđlauna en samstarfsfólk mitt á ađ sjálfsögđu hlut ađ máli,“ segir hann. 

Rćtt verđur nánar viđ Steinar Berg á menningarsíđum Morgunblađsins á föstudag.

 

Listi yfir verđlaunahafa

Plötur ársins

Lög og tónverk ársins

Flytjendur ársins

Söngur ársins

Önnur verđlaun

til baka