Íslenska landsliðið í handbolta verður án Ómars Inga Magnússonar og Arnars Freys Arnarssonar á HM og Aron Pálmarsson missir af fyrstu leikjum mótsins en þeir eru allir að glíma við meiðsli.
Þrátt fyrir áföll er góður andi í íslenska hópnum, sem ætlar sér langt á heimsmeistaramótinu. Fyrsti leikur Íslands er við Grænhöfðaeyjar annað kvöld.
„Við höfum tekið þeim áföllum vel. Það er mikil jákvæðni og góð stemning í hópnum. Við ætlum okkur að halda jákvæðninni út mánuðinn og halda hausnum uppi,“ sagði Gísli Þorgeir Kristjánsson við mbl.is frá hóteli landsliðsins í Zagreb í Króatíu.
„Þetta eru stór áföll fyrir okkur og sérstaklega fyrir Arnar að detta út svona stuttu fyrir mót. Sveinn hefur komið sterkur inn í staðinn og hann er frábær línumaður. Við erum með flotta menn sem koma í staðinn,“ bætti hann við.
Ísland mætir Grænhöfðaeyjum og Kúbu í tveimur fyrstu leikjunum á HM. Allt bendir til þess að Ísland og Slóvenía mætist svo í úrslitaleik um toppsæti riðilsins í lokaleiknum.
„Möguleikarnir eru fínir. Við ætlum að byrja á Grænhöfðaeyjum og svo er þetta gamla góða klisjan, að taka einn leik í einu. Við sjáum svo hvar við stöndum fyrir Slóvenaleikinn. Við gefum allt sem við getum í hvern einasta leik,“ sagði Gísli.