mið. 15. jan. 2025 08:00
Elliði Snær Viðarsson, Sveinn Jóhannsson og Elvar Örn Jónsson á æfingu í gær.
Fá ekki að æfa í keppnishöllinni

Íslenska karlalandsliðið í handbolta fær ekki að æfa í keppnishöllinni í Zagreb Arena í dag, einum degi fyrir fyrsta leik á HM, eins og tíðkast á stórmótum. Þess í stað fær liðið að æfa í tveimur minni sölum í Zagreb, öðrum snemma morguns og hinum síðdegis.

Íslenska liðið ætlar að þiggja boðið á morgunæfingu í öðrum salnum sem er skammt frá liðshótelinu við miðborg Zagreb. Hinn salurinn er í um klukkustunda akstursfjarlægð frá hótelinu og mun íslenska liðið að öllum líkindum ekki þiggja boð á síðdegisæfingu í þeim sal, þar sem leikmenn og þjálfarar yrðu komnir aftur upp á hótel seint að kvöldi til, degi fyrir stórmót.

Þá eru forráðamenn HSÍ ekki á allt sáttir við skipulag mótshaldara í Zagreb. Upplýsingar skila sér seint og þá eru sjö lið með bækistöðvar á hóteli Íslands en aðeins fjögur fundarherbergi, en venja er fyrir að hvert lið fái sitt fundarherbergi á stórmótum.

til baka