Ríkisstjórn Danmerkur og landsstjórn Grænlands hafa fallist á sameiginlega lausn í máli er varðar „foreldrahæfnipróf“ en dönsk stjórnvöld hafa síðasta mánuðinn sætt þungri gagnrýni vegna prófanna sem eru sögð mismuna Grænlendingum í Danmörku.
Prófin eru notuð víða í Danmörku sem hluti af barnaverndarrannsóknum en hafa lengi verið gagnrýnd af mannréttindastofnunum og grænlenskum stjórnmálamönnum, sem segja þau gjarnan ekki gera ráð fyrir tungumálamúrum eða menningarmun.
Rúmlega 5% grænlenskra barna í Danmörku eru sett á fósturheimili en aðeins 1% danskra barna.
Öflug mótmæli
Málið komst aftur í sviðsljós fjölmiðla í desember þegar nýfætt barn Keiru Alexöndru Kronvold var tekið af henni aðeins tveimur tímum eftir fæðingu á spítala á Norður-Jótlandi. Málið knúði fram öflug mótmæli í Nuuk og Kaupmannahöfn.
Í yfirlýsingu segir félags- og húsnæðismálaráðuneyti Dana að stjórnvöld hafi fallist á sameiginlega lausn sem verði kynnt í vikunni.
Þetta gerist einmitt skömmu eftir að Múte Egede formaður landsstjórnarinnar gaf í skyn að kosning um sjálfstæði Grænlands væri væntanleg.
https://www.mbl.is/frettir/innlent/2025/01/12/kaup_a_graenlandi_og_islandi_skodud_1867/