ţri. 14. jan. 2025 13:00
Norsku konungshjónin Haraldur og Sonja verđa bćđi komin međ gangráđ fyrir helgi, konungur fékk sinn í mars í fyrra í kjölfar alvarlegra veikinda sem hófust í Malasíu, en drottning fćr gangráđ á fimmtudaginn eftir ađ hafa fengiđ gáttatif um helgina.
Norsku konungshjónin verđa bćđi međ gangráđ frá fimmtudegi

Í Sonju Noregsdrottningu verđur senn grćddur hjartagangráđur í kjölfar gáttatifs sem hún fékk í skíđaferđ til Lillehammer um helgina. Var drottning lögđ inn á sjúkrahús um helgina og útskrifuđ heim eftir ítarlega skođun. Haraldur konungur fékk gangráđ í ađgerđ í mars í fyrra.

Á fimmtudaginn gengst hún undir skurđađgerđ á Ríkissjúkrahúsinu í Ósló ţar sem varanlegum gangráđi verđur komiđ fyrir í brjóstholi hennar og mun drottning, sem er 87 ára gömul, liggja á sjúkrahúsinu í einn til tvo daga á eftir á međan hún jafnar sig. Haraldur er einnig 87 ára, fćddur 21. febrúar 1937, og hafa hjónin ţar međ fengiđ gangráđ á sama aldursári sínu.

Einföld ađgerđ og hćttulítil

„Ástandiđ er ekki taliđ alvarlegt og drottning er viđ góđa heilsu eftir atvikum,“ sagđi í fréttatilkynningu frá norsku konungshöllinni eftir innlögn drottningar á laugardaginn.

Ole Christian Mjřlstad, yfirlćknir viđ St. Olavs-sjúkrahúsiđ í Ţrándheimi, segir í samtali viđ norska ríkisútvarpiđ NRK ađ gangráđur sé ekki algeng ráđstöfun í kjölfar gáttatifs (e. atrial fibrillation).

„Gáttatif er hjartsláttartruflun sem í sumum tilfellum tengist lágri hjartsláttartíđni, ýmist vegna hjartaáfalls eđa í kjölfar ţess. Í slíkum tilfellum getur gangráđur reynst nauđsynlegur til ađ koma reglu á hjartsláttartíđnina,“ segir Mjřlstad og bćtir ţví viđ ađ ađgerđin sé einföld og henni fylgi takmörkuđ áhćtta.

https://www.mbl.is/frettir/erlent/2024/03/02/herinn_flytur_harald_til_noregs/

Ástand Haraldar konungs var hins vegar alvarlegt ţegar hann veiktist hastarlega í Malasíu í febrúar í fyrra og var ţar lagđur inn á sjúkrahús sem hann lofađi í hástert. Norski herinn tók ađ sér ađ flytja konung heim ţar sem hann gekkst undir ađgerđ í mars og fékk sinn gangráđ.

NRK

VG

TV2

til baka