mán. 13. jan. 2025 20:00
Berfættir félagar syngja saman lag BlazRoca og Ásgeirs Trausta, Hvítir skór.
Erpur og Sveppi tóku lagið á sundlaugarbakkanum

Þeir kunna að skemmta, félagarnir Erpur Eyvindarson tónlistarmaður og Sverrir Þór Sverrisson, eða Sveppi Krull, eins og hann er gjarnan kallaður. 

Á dögunum var sett myndskeið á Instagram af þeim þegar þeir tóku lag Erps og Ásgeirs Trausta, Hvítir skór, á sundbuxum og með dúlluskraut á höfðinu, reyndar ekki í hvítum skóm heldur berfættir enda í sólinni á Srí Lanka.

Erpur hefur verið á ferðalagi undanfarnar vikur og dvalið m.a. í Norður-Afríku og Asíu og hefur birt myndir af sér m.a. í Sahara-eyðimörkinni.

Myndskeiðið hefst á snilldartöktum Erps, eða BlazRoca, en fljótlega kemur Sveppi Krull inn á sjónarsviðið og syngur Ásgeirs Trausta í laginu á borð við: „Ég á engar hórur en þeir kalla mig dólg.“

Það er spurning hvort Sveppi eigi að endurhugsa ferilinn og færa sig yfir í rappsenuna, en hann á augljóslega vel heima þar.

View this post on Instagram

A post shared by Björn Pálsson (@bjorn_palsson)

 

 

til baka