sun. 19. jan. 2025 16:00
Þægindin skipta öllu máli í skólanum.
Byrjaðu námið með krafti

Nú er góður tími til að endurnýja fartölvuna ef þess þarf, næla sér í góðan penna og dagatal. Þó að allt sé hægt í tölvunni þá finnst mörgum þægilegra að hafa hlutina skrifaða fyrir framan sig á skrifborðinu.

Það má líka leyfa sér ný föt núna og hafðu þá þægindin í fyrirrúmi. Flottur jogginggalli, strigaskór, hlý úlpa og flott yfirskyrta eru flíkur sem þú notar mikið. Svo er mikilvægt að eiga flott nestisbox og góðan brúsa.

til baka