Rapparinn Kendrick Lamar kom ađdáendum sínum heldur betur á óvart í dag er hann gaf óvćnt út 12 laga plötu.
Platan ber heitiđ GNX og er sjötta plata listamannsins. Birtist hún skyndilega á streymisţjónustum klukkan 17 í dag ađ stađartíma án einhvers konar kynningar.
Síđast gaf rapparinn út plötuna Mr. Morale & the Big Steppers áriđ 2022 sem sló í gegn og seldist í bílförmum.
Ţá ţykir tímasetning hins nýja tónverks vera nokkuđ góđ en rapparinn mun einmitt koma fram á hálfleikstónleikum Ofurskálarinnar í febrúar.
Tilnefndur til Grammy-verđlauna
Lamar, sem er 37 ára gamall, átti fyrr á árinu í miklum deilum viđ rapparann Drake ţar sem mennirnir sökuđu hvorn annan um alvarleg brot í formi rímnaflćđis.
Af deilunum spruttu ţó fram nokkrir af stćrstu smellum ársins, ţar á međal lag Lamars Not Like Us sem var tilnefnt til fjölda Grammy-verđlauna en verđlaunin verđa afhent á nćsta ári.