fös. 22. nóv. 2024 19:46
Elvar Örn Jónsson og Alexander Petersson eigast við í leik Melsungen og Vals í síðasta mánuði.
Toppliðið tapaði óvænt

Topplið Melsungen í þýsku 1. deildinni mátti sætta sig við óvænt tap fyrir Eisenach, 32:31, á útivelli í kvöld.

Melsungen heldur toppsætinu, að minnsta kosti að sinni, með 18 stig á meðan Eisenach er með tíu stig í 11. sæti.

Elvar Örn Jónsson var atkvæðamikill hjá Melsungen en hann skoraði fjögur mörk og gaf fjórar stoðsendingar. Arnar Freyr Arnarsson komst ekki á blað hjá liðinu.

til baka