fös. 22. nóv. 2024 14:47
Liðsmenn VECA fögnuðu og ljóst að þeirra manni, Einari Ragnarssyni, leiddist þetta ekkert en hann og Tómas Jóhansson, félagi hans í beinu útsendingunum stýrðu afhendingunni.
VECA er Coun­ter Stri­ke lið ársins

Kepnnistímabil Ljósleiðaradeildarinnar var gert upp að loknum sigri Dusty á Þór í úrslitaviðureigninni á laugardagskvöld. Þá var upplýst að lið VECA, sem í fyrra var kennt við Breiðablik, hefði verið valið lið ársins 2024 en liðið þótti sýna skemmtileg tilþrif á tímabilinu auk þess sem árangur þess hefur komið mörgum á óvart.

Nýkrýndir deildarmeistararnir í Dusty státa af leikmanni tímabilsins, hinum magnaða spilara Heiðari Flóvent Friðrikssyni sem á vígvellinum er þekktari sem Midgard.

Rifill ársins í Ljósleiðaradeildinni kemur úr röðum silfurliðs Þórsara en þar varð Antonio Kristófer Salvador (Tony) fyrir valinu. Þórsarar voru á hvínandi siglingu á tímabilinu og höfnuðu í 1. sæti deildarinnar fyrir umspil og úrslitakeppnina þar sem þeir máttu sætta sig við tap gegn Dusty.

Ólafur Barði Guðmundsson, sem spilar með Ármanni undir leikjanafninu „ofvirkur“, er AWP ársins 2024 og Böðvar Breki Guðmundsson (Zolo), liðsmaður Sögu, þótti hafa tekið mestum framförum á árinu og var verðlaunaður fyrir það.

 

 

 

 

 

 

 

Eins og áður segir hlaut VECA, sem féll út í undanúrslitum, viðurkenningu sem lið ársins en það er skipað þeim Magnúsi Árna Magnússyni (viruz), Leonis Zogu (dethkeik), Eyþóri Atla (wanker), Bjarna Þór Guðmundssyni (Bjarni), Þorláki Mána Dagbjartssyni (furious), Kristjáni Finnssyni (Stjani_Guli) og Einari „zim“ Ragnarssyni sem var á bekknum en þeim mun meira áberandi í beinum útsendingum frá deildinni sem lýsandi og klappstýra.

 

til baka