fös. 22. nóv. 2024 10:12
Aldís Amah og Kolbeinn eru eitt af glæsilegri pörum bæjarins.
Sér ekki sólina fyrir sínum heittelskaða

Leik­kon­an Al­dís Amah Hamilt­on fer ekki leynt með það hver á af­mæli í dag. Sam­býl­ismaður henn­ar, leik­ar­inn Kol­beinn Arn­björns­son, fagn­ar 41 árs afmæli sínu í dag og birti leik­kon­an langa færslu á In­sta­gram-síðu sinni í morgunsárið til heiðurs af­mæl­is­barn­inu.

Al­dís Amah og Kol­beinn kynnt­ust við tök­ur á spennuþáttunum Svört­um sönd­um sem sýnd­ir hafa verið á Stöð 2 við miklar vinsældir.

https://www.mbl.is/folk/frettir/2024/11/19/aldis_amah_med_hlutverk_i_hallmark_jolamynd/

„Jiii hvað haldiði?!

Kolbeinn á afmæli í dag, 22. nóvember.

Ég fæ að fagna afmælinu hans með honum í 4ja sinn og það eru stórkostleg forréttindi! Að venju erum við ekki heima hjá okkur heldur á ferð og flugi. Lognmollur eru ekki góðkunningjar okkar… En hver einasti hóll og hver einasta hæð er örlítið auðveldara að klífa með honum.

Ég óska öllum eins Kolla í lífið. Það er eins og að fá örlítið helíum á morgnana. Skrefin eru bara aðeins léttari.

Myndasyrpa yfir árið - frá seinustu viku þegar við fórum örugglega með lungnabólgu á djammið og aftur til fyrstu myndarinnar eftir seinasta afmæli.

Áður en ég fæ spurningar þá já, þetta er Kolbeinn að pissa upp í vindinn á hálendinu. Því þannig maður er hann. Maður sem pissar harðneskjulega framan í vindinn - við gætum fleiri tekið hann til fyrirmyndar.

Til hamingju með daginn ástin mín eina og takk fyrir að nenna þessum litla durgi,“ skrifaði Aldís Amah við skemmtilega myndaseríu af parinu. 

View this post on Instagram

A post shared by Aldís Amah Hamilton (@aldisamah)

 



til baka