Hver þekkir ekki húðvandamál sem spretta upp á þessum árstíma? Þegar loftið er þurrt og húðin jafnvel þurrari. Þá er í raun eina ráðið að smyrja á sig góðu andlitskremi og bíða eftir að það hlýni í veðri.
Hér eru nokkrar frábærar vörur sem hjálpa til við þurra og þroskaða húð. Húðin þarf hjálp frá rakameiri kremum þegar hún eldist. Húðin framleiðir minna af olíu og teygjanleiki húðarinnar er minni. Rakameiri húð lítur einnig yfirleitt betur út en rauðþrútin þurr húð.
CeraVe rakakrem
Rakakremið frá CeraVe er frábært alhliða krem sem hentar mörgum. Einnig er það á mjög góðu verði. Það er mjög rakamikið sem kemur jafnvægi á húðina en styrkir einnig ysta lag húðarinnar svo húðin finnur síður fyrir vandamálum. Kremið hentar þurri og mjög þurri húð bæði á andlit og líkama.
Vital Perfection frá Shiseido
Þetta styrkir örnæringanet húðarinnar og styður við endurnýjunarferli hennar sem þéttir, lyftir og birtir ásýnd húðarinnar.
BIOEFFECT Power Cream
Þetta krem er kraftmikið og djúpvirkandi, vinnur á hrukkum og fínum línum, jafnar lit og áferð og eykur þéttleika húðarinnar.
Moon Magic Serum frá Angan
Ekki rakakrem en þessir næturtöfrar eru rakagefandi og eru frábærir fyrir þurra húð. Formúlan inniheldur plöntubundið retinol sem vinnur á öldrunareinkennum húðarinnar. Það endurnýjar húðina, eykur raka og stinnleika. Örvar kollagenframleiðslu og dregur úr fínum línum og hrukkum með aðeins örfáum dropum. Án ilmefna og 100% náttúrulegt.
Andlitskrem frá ChitoCare
ChitoCare Beauty Face Cream ver húðina, er öflugur rakagjafi, eykur teygjanleika og sléttir yfirborð húðarinnar. Þessi vörn varðveitir æskuljóma húðarinnar og ver hana fyrir ertingu og ótímabærum skaða.
Rose Radiance frá Clarins
Ljómaaukandi dagkrem sem er hún er hannuð fyrir húð sem glímir við aldurstengdar hormónabreytingar. Blanda sjö plöntukjarna endurlífgar ungleika og ljóma húðarinnar. Einstök áferð sem gengur auðveldlega inn í húðina og gerir hana samstundis ljómameiri. Það sem þarf á veturna!
Toleriane frá La Roche-Posay
Nærandi og róandi dagkrem fyrir normal húð. Sérstaklega hannað fyrir viðkvæma húð sem finnur fyrir einkennum ofnæmis á húðinni.