Dómarar við Alþjóðaglæpadómstólinn (ICC) hafa gefið út handtökuskipanir á hendur Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, og Yoav Gallant, fyrrverandi varnarmálaráðherra.
Einnig var gefin út handtökuskipan á hendur Mohammed Deif, einum af yfirmönnum Hamas-samtakanna, þó svo að ísraelski herinn hafi sagt að hann hafi fallið í loftárás á Gasa í lok júlí.
Dómarar við dómstólinn telja þremenningana bera ábyrgð á meintum stríðsglæpum og glæpum gegn mannkyni í stríði Ísraels og Hamas. Bæði Ísrael og Hamas hafa vísað ásökunum á bug.