þri. 12. nóv. 2024 19:30
Kristófer Ingi Kristinsson verður áfram í Kópavoginum.
Framlengdi við Íslandsmeistarana

Kristófer Ingi Kristinsson hefur skrifað undir nýjan samning við Íslandsmeistara Breiðabliks í knattspyrnu. Nýi samningurinn gildir til næstu tveggja ára, út tímabilið 2026.

Kristófer Ingi er 25 ára gamall sóknarmaður sem skoraði fjögur mörk í 20 leikjum í Bestu deildinni á nýafstöðnu tímabili.

Hann ólst upp hjá Stjörnunni en hélt ungur að árum í atvinnumennsku þar sem Kristófer Ingi lék með Willem II, Jong PSV og Venlo í Hollandi, Grenoble í Frakklandi og Sönderjyske í Danmörku.

Alls á hann 26 leiki að baki fyrir Breiðablik í efstu deild og hefur skorað í þeim sex mörk.

til baka