Eva Ruza flytur pistla um stjörnurnar á hverjum degi á sinn einstaka hátt á K100.
B Tiny er ný skartgripalína sem er á leið á markaðinn og það er engin önnur en okkar allra besta Britney Spears sem er að hanna þessa línu.
Hún tilkynnti þetta spennt á Instagram – en Instagram er hennar helsti miðill við umheiminn. Þar birtir hún nánast daglega (og mjög erótísk oft á tíðum) dansmyndbönd, sem láta mig stundum efast um að þetta sé í raun Britney. Britney var náttúrulega þekkt fyrir rosaleg dansspor á sviðinu, en ég get staðfest að þeir hæfileikar eru á undanhaldi.
Kannski er þetta bara klón af Britney eins og Kristin Cavallari hélt fram í síðustu viku.
https://k100.mbl.is/frettir/2024/11/06/britney_visar_samsaeriskenningu_cavallari_a_bug/
En yfir í skartið, B Tiny er fyrsta skartgripalínan sem kemur frá „Brit“, en hún tilkynnti í síðasta mánuði að hún myndi aldrei stíga aftur inn tónlistarbransann, sem þýðir að ég mun aldrei fá að sjá hana „live“ á sviði, sem er svekkjandi. Hún segist hins vegar vera svokallaður „draugahöfundur“ eða „ghost writer“, og hafi skrifað yfir 20 lög fyrir annað tónlistarfólk síðastliðin tvö ár.
Það væri gaman að komast að því hvaða lög það eru.
En skartið, er ekki alveg selt á það sem hún hefur sýnt, en við sjáum hvað setur þegar öll línan fer í sölu. Kannski kemur hún okkur á óvart.