mið. 13. nóv. 2024 06:30
Frumleg og bragðgóð brauðterta sem upplagt er að útbúa og halda upp á Dag brauðtertunnar.
Brauðterta falska hérans í tilefni dagsins

Dagur íslensku brauðtertunnar er í dag, miðvikudaginn 13. nóvember og þá er lag að deila með lesendum uppskrift af þessari frumlegu og bragðgóðu brauðtertu sem ber heitið Brauðterta falska hérans. Uppskriftina er að finna í Stóru brauðtertubókinni sem kom út á dögunum.

Í bók­inni er fjöldi upp­skrifta að bæði sí­gild­um brauðtert­um og öðrum frum­legri. „Við sett­um sam­an teymi sem stóð að fram­kvæmd Íslands­móts­ins og það fólk er líka höf­und­ar og hug­mynda­smiðir bók­ar­inn­ar,“ seg­ir Anna Mar­grét Marinósdóttir bókaútgefandi hjá Sögum.

Fal­leg­ar mynd­ir Karls Peters­son mat­ar­ljós­mynd­ara prýða bók­ina og fá munn­vatnið til að flæða. Auk Karls og Önnu Mar­grét­ar voru í teym­inu Erla Hlyns­dótt­ir blaðamaður, Friðrik V. Hraun­fjörð mat­reiðslu­meist­ari, Helga Gerður Magnús­dótt­ir graf­ísk­ur hönnuður og Tóm­as Her­manns­son, bóka­út­gef­andi hjá Sög­um.

Brauðterta falska hérans

Fyrir 8-10

Hugmynd að skreytingu

Aðferð:

  1. Maukið kjúklingabaunir og setjið í skál.
  2. Saxið rauðlauk og súrar gúrkur og bætið út í skálina.
  3. Hrærið 2-3 dl majónes saman við eftir smekk.
  4. Smakkið maukið til með karríi, sítrónusafa, salti og pipar.
  5. Takið smá mauk frá fyrir skraut eftir smekk. Skerið skorpurnar af brauðlengjunum.
  6. Leggið eina lengju á bakka og smyrjið þriðjungi af maukinu yfir.
  7. Leggið aðra brauðlengjuna þar ofan á, smyrjið vel með majónesi og raðið salatblöðum yfir.
  8. Smyrjið þriðju lengjuna með majónesi og leggið hana með majóneshliðina niður ofan á salatblöðin.
  9. Smyrjið þriðjungi af mauki ofan á lengjuna.
  10. Endurtakið það sem gert var við aðra og þriðju lengjuna. Leggið loks sjöttu brauðlengjuna efst.
  11. Gott er að geyma tertuna í ísskáp yfir nótt og skreyta næsta dag.
  12. Smyrjið tertuna með majónesi.
  13. Skreytið af hjartans lyst.

 

 

til baka