Á föstudag fór fram einstaklega hressileg lagakeppni á K100 þar sem gervigreind var fengin til að semja lög um útvarpsmennina Bolla Már og Þór Bæring.
Mistök urðu þó til þess að lagið um Bolla innihélt mjög einkennandi fiðluspil, og minnti helst á sögulegra rómantíska kvikmynd, og kom bæði hlustendum og þáttastjórnendum í opna skjöldu. Fiðluspilið virkaði á endanum eins og leynivopn fyrir Bolla og tryggði honum sigurinn með yfirburðum.
Lagið „Bolli is a Great Lover“ sló algjörlega í gegn meðal hlustenda sem þökkuðu fyrir hláturinn í morgunsárið.
Sigurlagið, ásamt eftirminnilegu popplagi um Þór, má heyra í upptöku af keppninni hér fyrir neðan.