Íslendingur að nafni Hlöðver, kallaður Hlölli, hefur vakið mikla athygli fyrir einkennandi útlit sitt en hann er nýuppgötvaður tvífari eins vinsælasta tónlistarmanns landsins, Herra Hnetusmjörs. Það er óneitanlega sláandi hversu líkur Hlölli er Árna Páli Árnasyni sem einnig er meðlimur í Ice Guys. Myndband af Hlölla að syngja og dansa við lagið „Upp til hópa“, með Herra hnetusmjöri og Inga Bauer, hefur vakið athygli.
Hlölli segist reglulega lenda í því að fólk ruglist á honum og rapparanum vinsæla. Hann er jafnvel kominn með stórskemmtilegt viðurnefni, þar sem vinnufélagar hans kalla hann gjarnan „Herra Möndlusmjör.“
Heiðar Austmann og Bolli Már í Ísland vaknar heyrðu í manninum sem hafði lent í ýmsu vegna sláandi líkinda sinna, en hann staðfesti að Herra Hnetusmjör sjálfur vissi um tilvist Herra Möndlusmjörs.
„Síðast þegar ég hitti hann sagði hann mér nú að ég væri bara helvíti myndarlegur,“ sagði Hlölli glettnislega.
Hér má hlusta á viðtalið við Hlölla, eða Herra Möndlusmjör, í heild sinni í Ísland vaknar.