þri. 1. júlí 2025 08:00
Mælt er með því að nota sólarvörn sem er vottuð frá þartilgreindum aðilum.
„Þegar svona stórt svæði húðarinnar skaðast þá laskast hitajöfnunartæki líkamans“

Margir hyggja á ferðalög erlendis í sumar þar sem sólardagarnir eru fleiri en á Íslandi. Gæta þarf vel að því að brenna ekki og mikilvægt er að bera á sig sólarvörn.

Margir eiga það þó til að brenna og stundum er bruninn það slæmur að leita þarf til læknis.

Húðlæknirinn Jennifer Tang segir í viðtali við Huffington Post að mikilvægt sé að láta lækni skoða sólbruna ef hann nær yfir mikið og stórt svæði líkamans eða ef miklar blöðrur myndast.

„Þegar svona stórt svæði húðarinnar skaðast þá laskast hitajöfnunartæki líkamans og vökvatapið verður mikið. Þá er gott að fara á spítala eða læknavakt,“ segir Tang.

„Ef blöðrurnar ná yfir 30% líkamans þá þarf að leita sér aðstoðar. Fólk gæti einnig upplifað í kjölfarið einkenni á borð við ringlun, vökvaskort, háan púls og háan hita.“

Sérfræðingar segja að mikilvægt sé að bera á sig sólarvörn á tveggja tíma fresti. „Sólarvörnin á að vera að minnsta kosti 30 SPF. Þá skal forðast að vera úti eða vera í skugga þegar sólin er hæst á lofti á milli klukkan 10 og 16 á daginn.“

Leita skal til læknis þegar:

Ráð til að meðhöndla bruna:

 

til baka