lau. 4. maí 2024 07:00
Sandra María Jessen er komin með sjö mörk í þremur leikjum.
3. umferð: Komin í 16. sæti - þrjár skorað í öllum - langþráð hjá Selmu

Sandra María Jessen heldur áfram að hirða fyrirsagnirnar í Bestu deild kvenna í fótbolta og er markahæst í deildinni eftir þrjár umferðir.

Ekki nóg með það heldur hefur hún skorað öll sjö mörk Þórs/KA í deildinni til þessa.

Með mörkunum tveimur sem tryggðu Akureyrarliðinu sigur á Þrótti, 2:1, í Boganum í 3. umferðinni er hún komin í sextánda sætið yfir markahæstu leikmenn deildarinnar frá upphafi með 96 mörk. Sandra fór með því fram úr Valskonunni Dóru Maríu Lárusdóttur sem er nú í 17. sætinu með 94 mörk.

Jordyn Rhodes er annar leikmaður sem hefur séð um markaskorun síns liðs á tímabilinu. Hún skoraði bæði mörk Tindastóls í góðum útisigri á Stjörnunni, 2:0. Fyrstu stig og mörk Skagfirðinga, og fyrstu mörkin sem Jordyn skorar í deildinni.

 

Vigdís Lilja Kristjánsdóttir úr Breiðabliki og Amanda Andradóttir úr Val hafa eins og Sandra skorað í þremur fyrstu leikjum sinna liða á tímabilinu. Vigdís er nú búin að skora jafnmörg mörk í þessum þremur leikjum Breiðabliks, fimm talsins, og hún hafði skorað í fyrstu 39 leikjum sínum í efstu deild fyrir þetta tímabil.

Selma Dögg Björgvinsdóttir skoraði langþráð fyrsta mark sitt í efstu deild, í sínum 52. leik í deildinni. Það var seinna mark Víkings í stóru tapi gegn Val á Hlíðarenda, 7:2.

Ragnheiður Þórunn Jónsdóttir skoraði einnig fyrsta mark í deildinni í sama leik, fyrir Val, en það var í hennar þriðja leik. Ragnheiður, sem er aðeins 16 ára, skoraði 13 mörk fyrir Hauka í 2. deild í fyrra.

Úrslit­in í 3. um­ferð:
Val­ur - Vík­ing­ur R. 7:2
Þór/​KA - Þrótt­ur R. 2:1
Fylk­ir - Kefla­vík 4:2
Breiðablik - FH 3:0
Stjarn­an - Tinda­stóll 0:2

Marka­hæst­ar:
7 Sandra María Jessen, Þór/​KA
5 Vig­dís Lilja Kristjáns­dótt­ir, Breiðabliki
4 Am­anda Andra­dótt­ir, Val
3 Eva Rut Ásþórsdóttir, Fylki
3 Jasmín Erla Ingadóttir, Val
2 Agla María Al­berts­dótt­ir, Breiðabliki
2 Hafdís Bára Höskuldsdóttir, Víkingi
2 Hannah Sharts, Stjörn­unni
2 Jordyn Rhodes, Tindastóli
2 Sig­dís Eva Bárðardótt­ir, Vík­ingi

Næstu leik­ir:
8.5. Breiðablik - Stjarnan
8.5. FH - Þróttur R.
8.5. Keflavík - Valur
9.5. Víkingur R. - Þór/KA
9.5. Tindastóll - Fylkir

til baka