fös. 3. maí 2024 21:52
Styrmir Snær Þrastarson í leik með íslenska landsliðinu.
Öflugur í tíunda sigrinum í röð

Styrmir Snær Þrastarson, landsliðsmaður í körfuknattleik, átti góðan leik þegar lið hans Belfius Mons vann tíunda leik sinn í röð í neðri hluta sameiginlegrar úrvalsdeildar Belgíu og Hollands.

Að þessu sinni vann Belfius Mons öruggan sigur á Leuven Bears, 85:70 og er í öðru sæti í neðri hlutanum með ellefu sigra og eitt tap.

Styrmir Snær skoraði 13 stig, tók tvö fráköst og gaf fjórar stoðsendingar á tæpum 28 mínútum hjá Belfius Mons.

til baka