fös. 3. maí 2024 14:30
Birna Einarsdóttir skaut föstu skoti á Snorra Másson á ársfundi SFS.
„Ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús“

Birna Einarsdóttir, stjórnarformaður Iceland seafood, skaut föstu skoti á Snorra Másson fjölmiðlamann á ársfundi Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) í dag.

Birna stjórnaði fundi en Snorra var falið að sjá um pallborðsumræður.

https://www.mbl.is/200milur/frettir/2024/05/03/beint_arsfundur_sfs/

Þegar Birna kynnti Snorra til leiks sagði hún: „Til að stjórna umræðum höfum við fengið Snorra Másson. Eins og fram kom í nýlegu hlaðvarpi þá er ég bara kona þannig að ég dreg mig í hlé og fer bara og stofna kaffihús.“

Vísaði hún með orðum sínum til hlaðvarpsþáttar sem Snorri stendur fyrir ásamt bróður sínum. Í nýlegum þætti lét Snorri falla umdeild orð um hvernig væri æskilegast að skipuleggja heimilishald að hans mati.

https://www.mbl.is/frettir/innlent/2024/04/26/konan_hugsi_um_bornin_og_karlinn_um_peningana/

til baka