mið. 24. apr. 2024 12:00
Í fremri röð frá vinstri eru Ásta, Hildur og Rán. Fyrir aftan þær eru Einar Þorsteinsson borgarstjóri og meðlimir dómnefndar Sunna Dís Jensdóttir og Anna C. Leplar.
Hildur, Rán og Ásta verðlaunaðar

Barnabókaverðlaun Reykjavíkurborgar 2024 voru veitt í Höfða rétt í þessu. Einar Þorsteinsson borgarstjóri Reykjavíkur afhenti verðlaunin sem veitt eru í þremur flokkum.

Hildur Knútsdóttir hlaut verðlaunin í flokki frumsaminna verka fyrir Hrím sem JPV gefur út, Rán Flygenring í flokki myndlýsinga fyrir Álfa sem Angústúra gefur út og Ásta Halldóra Ólafsdóttir í flokki þýðinga fyrir Tannburstunardaginn mikla sem Kvistur gefur út.

Í dómnefnd voru Sunna Dís Jensdóttir formaður, Anna C. Leplar og Arngrímur Vídalín.

 

Hvarvetna vandað til verka

„Viðtökurnar voru svo góðar að ég fór fljótlega að leiða hugann að því að skrifa óbeint framhald, þó það hafi alls ekki staðið til upphaflega“ segir Hildur Knútsdóttir í samtali við Morgunblaðið. 

Í umsögn dómnefndar um Hrím:

„Hildur Knútsdóttir er ötull og metnaðarfullur höfundur furðu- og ævintýrasagna fyrir ungmenni og fer oft ótroðnar slóðir í verkum sínum. Í bók sinni Hrím skapar Hildur nýjan heim sem er gerólíkur okkar, en er engu að síður okkar kunnuglega Þingeyjarsýsla. En veruleikinn er allt annar. Á þessu Íslandi er nokkurs konar ættbálkasamfélag eða hirðingjasamfélag sem skiptist í skara eftir búsetu, líf fólksins er erfitt og þrungið hættu við hvert fótmál. Dýrin eru mun stærri, voldugri, hættulegri, þar eru haðnaut, skriðukettir, ógnarstórir laxar sem éta fólk, og skelfilegar óvættir sem kallast hrímsvelgir. Tungutak bókarinnar ber með sér mikla virðingu höfundar fyrir lesendum sínum, en það virkar í senn nokkuð fyrnt auk þess að fjölmörg ný en engu að síður fornleg orð skjóta fumlaust upp kollinum. Nöfn persónanna endurspegla jafnframt samfélagið: Jófríður, Eirfinna, Bresi, Auðni, Karki, Kneif. Allt verður þetta áþreifanlegt og raunverulegt í meðförum Hildar, líkt og heimur sem ætíð hefur verið til og við ættum að vera kunnug. Hrím er öðruvísi bók, meitluð, hvarvetna vandað til verka, spennandi bók og ber með sér fyrirheit um heilan bókaflokk um lífsbaráttu skaranna og vægðarlaus náttúruöflin.“

Viðurkenning fyrir álfana

„Þetta kom mjög á óvart og er æðislega gaman,“ segir Rán Flygen­ring. „Fyrst var ég svo glöð fyrir hönd álfanna.“ 

Í umsögn dómnefndar um Álfa segir:

„Myndmál Ránar Flygenring í bókinni Álfar er margslungið en um leið einfalt, fyndið og framsett með ýmis konar hætti, til dæmis í formi myndasagna og dagblaðagreina. Þær endurspegla ólíkar sögur verksins og bjóða upp á óendanlega fjölbreytni fyrir lesendur. Notkun Ránar á vatnslitum, lifandi línum og takmarkaðri, en úthugsaðri, litapalettu leiða lesandann leikandi í gegnum bókina. Myndlýsingarnar gæða sögurnar lífi og stækka þær, gjarnan með myndum sem eru hliðstæðar textanum án þess þó að túlka hann beint. Kímnigáfa Ránar og næmni er ávallt til staðar og bæta við verkið í heild. Hið sama má segja um hina snjöllu notkun á nánast gegnsæju lagi af teikningum sem svífa í gegnum bókina og afhjúpa gjarnan þriðju hlið frásagnarinnar.“

Kom ánægjulega á óvart

„Þetta kom mjög á óvart, ánægjulega á óvart,“ segir þýðandinn og útgefandinn Ásta Halldóra Ólafsdóttir. „Kvistur bókaútgáfa fékk þrjár tilnefningar. Ég lofa að ég þekki engann í dómnefndinni.“

Í umsögn dómnefndar um Tannburstunardaginn mikla segir: 

Tannburstunardagurinn mikli eftir Sophie Schoenwald og Günther Jakobs er einstaklega lífleg og fjörug frásögn sem segir frá dýragarði þar sem hvorki sést til dýra né gesta við upphaf sögunnar. Forstjórinn Alfreð kemst að því að vandamálið er framtaksleysi dýranna við tannburstun og fær broddgöltinn Boga Pétur með sér í að leysa málið. Úr verður skemmtileg, fyndin en líka svolítið hættuleg atburðarás sem þýðandanum Ástu Halldóru Ólafsdóttur tekst að koma vel til skila. Textinn er léttur og leikandi og aðfarir Boga Péturs kalla oftar en ekki fram bros á vörum lesenda.“

Viðtöl við verðlaunahafana þrjá má finna í menningarsíðum morgundagsins á morgun, fimmtudag. 

til baka